Kalkulin er Svansvottuð iðnaðarsápa sem hentar í margskonar þrif sem dæmi má nefna: gólf, veggi og öll önnur yfirborðsþrif og virkar mjög vel og fitu og olíu. Kalkulin hentar mjög vel sem bílasápa og til þrifa á flutningabílum bæði utanvert sem og innan í vögnum.
Blöndun (til móts við vatn)
- Almenn þrif: 1-2% í vatn
- Lágþrýstur þvottur 1-5%
- Kvoðuhreinsibúnaður 1-5%
pH gildi
- Þynnt (m.v. blöndun hér að ofan): 8-9
- Óblandað: 11,2
Notkunarleiðbeiningar
berist á með bursta, svampi eða kvoðubúnaði. Virknitími er allt frá 1-10 mínútur. Skolist af með vatni. Mjög óhreinir fleti og yfirborð getur þurft að bursta . Við þrif á prótínríkum óhreinindum s.s. í stóreldhúsum, matvinnslusvæðum og sláturhúsum er best að kvoða með tilheyrandi kvoðubúnaði og mest 30°C heitu vatni. Ílát og verkfæri sem komast í snertingu við matvæli skal ávallt skola vel með hreinu vatni.
Við þrif á ílátum og búnaði til flutninga má notast við 60-95°C heitt vatn, kvoðið búnaðinn og látið liggja á í 10 mínútur og skolið af með köldu vatni.