Sealey Headlight Restoration Kit – Slípisett fyrir mött og gulnuð framljós. Eru framljósin á bílnum þínum orðin skýjuð, gulnuð, sand- og veðurblásin? Sealey Headlight Restoration Kit er slípisett til að slípa og pólera framljósin og gera þau eins og ný. Fyrir utan það að gulnuð og mött framljós eru lýti á bílnum þá er aðalatriðið að þetta dregur úr lýsingu framljósanna sem veldur hættu. Það er öryggisatriði að halda ljósunum hreinum og kristaltærum, bæði fyrir þig sem bílstjóra sem og fyrir þá sem þú ert að mæta í umferðinni.
Settið inniheldur allt sem þarf til þess að slípa og hreinsa 2 framljós.
- Slípidiska: P800 (x2), P1200 (x2), P2000 (x2)
- M10 Male to Female Adaptor
- 40g slípimassa (x2)
- 3ml Protection Liquid (x2)
- 3m x 20mm málningarlímband
- Bakplötu fyrir slípidiska og svampa
- M10 Female Thread
- Sponge Discs: appelsínugulur (orange) og hvítur (white)