Novadan

Klór 15% (Natríumhýpóklórít)

Verð
6.889 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Klór 15% Natríumhýpóklórít er mikið notuð til sótthreinsunar í mavælaiðnaði, hentar vel í alla sótthreinsun.  Sem dæmi má nefna, sótthreinsun í matvælaiðnaði, fiskiskipum, landbúnaði og á sundlaugavatni og sem bleikiefni í þvotta- og vefnaðariðnaði. Klór 15% er einnig notaður sem oxunarmiðill í efnaiðnaði og til meðhöndlunar á fráveituvatni.

StaðaÁ lager

Vörulýsing

Klór 15% (Natríumhýpóklórít)

NOTKUN:
KLÓR er notaður til sótthreinsunar í matvælaiðnaði, sjávarútvegi til sjós og lands, landbúnaði, sundlaugavatni sem og bleikiefni í þvotta- og vefnaðariðnaði. KLÓR er einnig notaður sem oxunarmiðill í efnaiðnaði og til meðhöndlunar á fráveituvatni.

EIGINLEIKAR:
KLÓR er basískt sótthreinsiefni, breiðvirkt og hraðvirkt og virkar vel á flestar örverur; bakteríur, sveppi, gró og veirur. Myndar eitrað gas í snertingu við sýru. Tæring getur komið fram á ýmsum málmum við langtíma notkun á klór, t..d. járni, stáli, kopar, bronsi, messing og áli.

EINKENNI:
Litlaus eða lítið eitt gulleit/grænleit lausn með klórlykt.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR OG BLÖNDUN:
Blandist í vatni. Hæfilegur styrkur til sótthreinsunar er 200 ppm virkur klór eða 0,16% (samsvarar 0,13 dl í hverja 10 lítra vatns). Sótthreinsar best við yfir 25°C hita. Notið aðeins plastílát fyrir klór en aldrei málm. MYNDAR EITRAÐ GAS Í SNERTINGU VIÐ SÝRU. Þegar hreinsun er lokið þarf að skola vandlega með neysluvatni alla fleti sem komist geta í snertingu við matvæli.

EFNISLÝSING:
Bleikiefni með klór; natríumhýpóklórít – 12,4% virkur klór.

Eðlisþyngd: 1,22 kg/l
pH óblandað u.þ.b. 13

GEYMSLA:
Geymist í upprunalegum umbúðum vel lokuðum. Geymið ekki hjá matvælum og öðrum neysluvörum, fóðri eða lyfjum. Geymið ekki með sýrum eða súrum efnum svo ekki komi til blöndunar.

VIÐURKENNINGAR:
KLÓR 15% er viðurkennt af Hollustuvernd ríkisins til þrifa og gerileyðingar í matvælafyrirtækjum. Skráningarnúmer er 03-404.

Viðbótar upplýsingar

Framleiðandi

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Meira frá
Novadan
Skoða allt →
Oxidan Special 150 20L
Oxidan Special 150 20L

Novadan Oxidan Special 150 er breiðvirkt, hraðvirkt sótthreinsiefni með 15% perediksýru fyrir faglega notkun. Virkar við lágan styrk…

Vnr: 55780
VæntanlegSjá nánar