NýttHeskins

Endurskinsborði DOT 50mm beinn

Vörunúmer h6602a-050
Verð
31.666 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

DOT-C2 endurskinsborði frá Heskins, 50 mm × 45,7 m. Beinir rauðir og hvítir kaflar, glerperjuyfirborð, fimm ára ábyrgð.

Fylgiskjöl1 skjal

StaðaAðeins 2 eftir á lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmerh6602a-050 Strikamerki5694311354980 Flokkar, Stikkorð, Vörumerki

Vörulýsing

Heskins H6602 er glerperlu-endurskinsborði fyrir útlínumerkingu ökutækja samkvæmt bandaríska DOT C-2 staðlinum. Yfirborðið er þakið örsmáum glerperlum sem liggja í sexhyrndu neti (honeycomb) og skila meirihluta ljóssins aftur til ljósgjafans í breiðri keilu, svo borðinn sést úr mörgum sjónarhornum en ekki aðeins beint framan frá.

Borðinn er merktur DOT-C2 með rauðu letri á hvítu köflunum, eins og staðallinn krefst. Hann er ætlaður á vörubifreiðar, eftirvagna, tankvagna og vinnuvélar — einkum tæki sem smíðuð eru í Evrópu en gerð út í Norður-Ameríku, þar sem DOT-merking er skylda.

Kaflaskipting borðans

DOT C-2 borðar skiptast í rauða og hvíta kafla sem skiptast á eftir endilöngu. Heskins framleiðir tvær kaflaskiptingar:

Skýringarmynd af kaflaskiptingu DOT C-2 endurskinsborða: efri borðinn með 152 mm rauðum og 152 mm hvítum kafla, neðri með 279 mm rauðum og 178 mm hvítum kafla

Helstu eiginleikar

  • Uppfyllir dagsbirtulitakröfur FMVSS 108, DOT C-2 og ASTM D4956:2013
  • Lágmarksendurskin við −4° innfallshorn: hvítt 250, rautt 60 cd/lx/m²
  • Glerperlur í sexhyrndu neti — breið endurskinskeila
  • Stenst háþrýstiþvott (83 bar, 45°, 75 mm fjarlægð)
  • Óháður tólúeni, dísilolíu, xýleni og TSP-hreinsiefni
  • Engin tæring eftir 1000 klst. í 5 % saltúða (ASTM B-117)
  • Höggþolinn, bæði við stofuhita og við −20 °C
  • Fimm ára ábyrgð — endingartími í reynd oft lengri

Ásetning

Undirlagið þarf að vera hreint, þurrt og fitulaust. Límið festist á ál, stál og trefjaplast. Lágmarkshiti við ásetningu er 15 °C — það er hærra en á flestum öðrum endurskinsborðum og skiptir máli hér á landi, svo ásetning innandyra eða í upphituðu rými er oftast raunhæfari kostur.

DOT C-2 er ekki það sama og ECE 104

DOT C-2 er bandarískur staðall. Hann kemur ekki í staðinn fyrir ECE 104, sem er sá staðall sem gildir um lögboðna útlínumerkingu vörubifreiða, hópbifreiða og eftirvagna á evrópska efnahagssvæðinu. Sé verkið evrópsk útlínumerking þarf ECE 104 flokk C — við seljum slíkan borða sérstaklega.

Tæknilegar upplýsingar

Breidd50 mm
Rúllulengd45,7 m
LiturRautt / hvítt
StaðallDOT C-2
Endurskin hvítt250
Endurskin rautt60
LRV hvítt38,9
LRV rautt15,2
Þykkt0,405–0,445 mm
Ásetningarhiti15 °C og hærra
Flögnunarkraftur31,1 N/25 mm
Togþol189,6 N/25 mm
Ábyrgð5 ár

Endurskinsgildi eru lágmörk í cd/lx/m² við −4° innfallshorn, mæld skv. ASTM E810. Tölur eru til viðmiðunar.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 1,00 kg
Framleiðandi

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Meira frá
Heskins
Skoða allt →
Þrjár rúllur af gulum mótanlegum hálkuborða Heskins H3406Y í mismunandi breiddum
Hálkuborði mótanlegur gulur

Gulur, mótanlegur hálkuborði frá Heskins með mjúku álburðarlagi og grófu áloxíðyfirborði. Mótast ofan í tárustál og riffluð stálþrep.…

Vnr: H3406Y
Sjá nánar
Þrjár rúllur af svörtum mótanlegum hálkuborða Heskins H3406N í mismunandi breiddum
Hálkuborði mótanlegur svartur

Svartur, mótanlegur hálkuborði frá Heskins með mjúku álburðarlagi og grófu áloxíðyfirborði. Mótast ofan í tárustál og riffluð stálþrep.…

Vnr: H3406N
Verð frá 7.450 kr.
Sjá nánar