Insect-O-Cutor

Pera LED í Halo og Flytrap 2pk

Vörunúmer 1106002596
Verð
19.750 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Varalampar fyrir Halo LED og Flytrap 30 LED flugnabanana. Tveir UV-LED lampar í pakka, af gerðinni LED 18 Long. Viðmiðunartími fyrir skipti er þrjú ár, í stað árlegra skipta á flúrrörum.

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer1106002596 Flokkur Stikkorð Vörumerki

Vörulýsing

Þetta er UV-LED lampasettið fyrir Halo LED-línuna og Flytrap 30 LED frá Insect-O-Cutor. Tveir lampar fylgja í pakka, af gerðinni LED 18 Long (LED180-100-2).

Þrjú ár í stað eins

Stærsti munurinn á UV-LED lampa og hefðbundnu UV-flúrröri er endingin. Flúrrör þarf að endurnýja árlega, því fosfórhúðin brennur burt eftir um 8.000 klukkustundir. UV-LED lampi hefur þriggja ára viðmiðunartíma, sem þýðir þrisvar sinnum færri þjónustuferðir og minna lagerhald á varahlutum.

UV-útgeislunin dvínar þó líka hjá LED, hægt og jafnt. Lampinn heldur áfram að lýsa eftir þrjú ár, en fluguveiðin er farin að dala. Skiptu á þriggja ára fresti þótt ekkert virðist að.

Tæknilegar upplýsingar

Vörunúmer 1106002596
Gerð LED 18 Long (LED180-100-2)
Framleiðandi Pelsis
Pakkning Tveir lampar
Ljósgjafi UV-LED
Viðmið fyrir skipti Þrjú ár

Passar í þessi tæki

Halo 15 LED Vörunúmer 1106078044. Einn lampi.
Halo 30 LED Vörunúmer 1106078045. Tveir lampar.
Halo 30 LED Digital Vörunúmer 1106078048. Tveir lampar.
Flytrap 30 LED Vörunúmer 1106078058. Tveir lampar.
Digital Flytrap 30 LED Vörunúmer 1106078062. Tveir lampar.

Skipti á lampa

  1. Aftengdu tækið frá rafmagni.
  2. Opnaðu framhlífina. Í Halo helst hún opin á meðan þjónustað er.
  3. Finndu klemmuna á lampahaldaranum og dragðu hana fram.
  4. Renndu lampanum til hliðar svo hann losni úr öðrum haldaranum, sveiflaðu honum síðan fram og út úr hinum.
  5. Settu nýja lampann í með öfugri aðferð og gættu þess að klemman smelli á sinn stað.
  6. Snertu hvorki LED-einingarnar né linsurnar. Fita af fingrum dregur úr útgeisluninni.
  7. Tengdu rafmagnið og athugaðu hvort kviknað hafi á lampanum.
  8. Fargaðu gamla lampanum samkvæmt reglum um raf- og rafeindabúnað.

Athugaðu: Halo 30 Aqua LED (1106078047) notar ekki þennan lampa. Sú gerð þarf innsiglaða Aqua-lampa, 1106002729 eða 1106002730. Flytrap 80 LED notar LED 30 Long, 1106002595.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,10 kg
Framleiðandi

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Meira frá
Insect-O-Cutor
Skoða allt →
Halo 15 LED flugnabani frá Insect-O-Cutor með límspjaldi, veggfestur í atvinnurými
Flugnabani Halo 15 LED

Nettur UV-LED flugnabani með límspjaldi fyrir minni atvinnurými. LED-ljósgjafinn endist í þrjú ár og rekstrarkostnaður er allt að…

Vnr: 1106078044
79.750 kr.
Setja í körfu