Insect-O-Cutor

Flugnabani Flytrap 80 LED

Vörunúmer 1106078059
Verð
109.750 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Öflugri gerðin af Flytrap LED, með LED 30 Long lömpum fyrir stærri rými. Sama hús og Flytrap 30, sami límspjaldsstaðall og sama þriggja ára ábyrgð. Veggfesting eða upphenging í loft.

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer1106078059 Strikamerki5056474320057 Flokkur Stikkorð, , Vörumerki

Vörulýsing

Flytrap 80 LED frá Insect-O-Cutor er stærri bróðir Flytrap 30 LED. Húsið er það sama en lamparnir eru öflugri, LED 30 Long í stað LED 18 Long, svo UV-útgeislunin nær lengra út í rýmið.

Notkun og helstu eiginleikar

Veldu 80-gerðina þegar rýmið er stórt eða loftið hátt: framleiðslusalir, vöruhús, móttökusvæði og stærri eldhús. Í minni rýmum dugar Flytrap 30 LED og notar minna rafmagn.

Tækið má festa á vegg eða hengja úr lofti með keðjum. Upphenging er oft betri kostur í stórum sölum, því þá sést UV-ljósið úr fleiri áttum.

UV-LED lamparnir hafa þriggja ára viðmiðunartíma. Límspjaldið er Universal EasyCount með talningarneti, það sama og Flytrap 30 og Halo LED-línan nota, svo blandaður tækjafloti þarf ekki nema eina gerð af límspjöldum á lager.

Tæknilegar upplýsingar

Vörunúmer 1106078059
Gerð Flytrap 80 LED, ljósgildra með límspjaldi
Framleiðandi Insect-O-Cutor (Pelsis)
Föngun UV-LED ljós og límspjald
Rafmagn 230 V ~ 50 Hz
Mál, breidd × dýpt × hæð 482 × 287 × 134 mm
Þyngd 3,7 kg
Ljósgjafar Tveir UV-LED lampar, LED 30 Long (LED180-102-2)
Varalampar 1106002595
Viðmið fyrir lampaskipti Þrjú ár
Límspjald Eitt Universal EasyCount, 1106002593
Festing Veggfesting eða upphenging í loft
Upphenging Keðjur með 20 kg brotþoli, festipunktar 482 mm á milli
Ábyrgð Þrjú ár. Lampar og límspjöld eru undanskilin.
Innihald Tæki, tveir uppsettir UV-LED lampar, límspjald, tvær skrúfur og tappar, aftengjanleg IEC-rafmagnssnúra

Fylgihlutir og aukahlutir

Rekstrarvörurnar sem tækið notar. Smelltu á vöruna til að skoða hana nánar.

Límspjald Universal EasyCount límspjald, 15 stk. (1106002593). Eitt heilt spjald. Skipt á fjögurra til fimm vikna fresti.
UV-LED lampar Tveir LED 30 Long lampar (LED180-102-2), vörunúmer 1106002595. Ekki í vefversluninni; hafðu samband og við pöntum.

Uppsetning og viðhald

  1. Veldu stað þar sem UV-ljósið sést vel, fjarri gluggum, þakgluggum og öðrum sterkum ljósgjöfum. Tækið á ekki að vera hulið af húsgögnum, hurðum eða hillum. Ekki staðsetja tækið beint yfir opnum matvælum, matvælavinnsluflötum, vöskum eða gufugjöfum.
  2. Festu tækið í um 2 m hæð eða lægra. Flugur fljúga lágt og gildran á að vera í þeirra hæð.
  3. Veggfesting: merktu festipunktana tvo, boraðu og settu tappana í. Hengdu tækið á skrúfurnar og hertu framan frá.
  4. Upphenging: notaðu keðjur sem þola að minnsta kosti 20 kg brotálag, festar með 482 mm millibili.
  5. Taktu hlífðarpappírinn af límspjaldinu og renndu því undir spjaldbrautirnar.
  6. Láttu tækið ganga allan sólarhringinn. Skordýr laðast mest að UV-ljósi að næturlagi þegar dagsbirta keppir ekki við það.
  7. Skiptu um límspjald á fjögurra til fimm vikna fresti, eða fyrr ef það fyllist.
  8. Skiptu um UV-LED lampana eftir þrjú ár. Mundu að Flytrap 80 notar 1106002595, ekki sama lampasett og Flytrap 30.
  9. Aftengdu rafmagn fyrir þrif. Þurrkaðu tækið með rökum klút og mildu hreinsiefni og láttu það þorna alveg áður en það er tengt aftur. Mánaðarleg þrif eru viðmiðið.

Tækið er ætlað til notkunar innandyra. Það hentar ekki í hesthús, fjós eða sambærileg rými, og ekki þar sem eldfimar gufur eða sprengifimt ryk geta verið til staðar. Ljósgildra er einn hluti af skordýravörnum. Góð þrif, lokun aðkomuleiða og flugnanet í gluggum vinna með tækinu.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 4,50 kg
Framleiðandi

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Meira frá
Insect-O-Cutor
Skoða allt →
Halo 15 LED flugnabani frá Insect-O-Cutor með límspjaldi, veggfestur í atvinnurými
Flugnabani Halo 15 LED

Nettur UV-LED flugnabani með límspjaldi fyrir minni atvinnurými. LED-ljósgjafinn endist í þrjú ár og rekstrarkostnaður er allt að…

Vnr: 1106078044
79.750 kr.
Setja í körfu