Augnskol áfylling 0,9% SSC (græn)
Plum Wound and Eyewash 0,9% Sodium Chloride augnskol með 0,9% NaCl, steríl augn- og sáraskolunarlausn sem er hönnuð til að hreinsa óhreinindi, ryk og aðskotahluti úr augum og sárum. Lausnin er ómissandi hluti af fyrstu hjálp á vinnustöðum þar sem hætta er á mengun eða slysum.
Varan er sérstaklega hentug fyrir iðnað, verkstæði og rannsóknarumhverfi þar sem skjót og örugg viðbrögð skipta sköpum til að fyrirbyggja frekari skaða.
Fylgiskjöl4 skjöl
Tæknilýsing
Bæklingur
Vörulýsing
Plum Wound and Eyewash 0,9% Sodium Chloride augnskol með 0,9% NaCl, steríl augn- og sáraskolunarlausn sem er hönnuð til að hreinsa óhreinindi, ryk og aðskotahluti úr augum og sárum. Lausnin er ómissandi hluti af fyrstu hjálp á vinnustöðum þar sem hætta er á mengun eða slysum.
Varan er sérstaklega hentug fyrir iðnað, verkstæði og rannsóknarumhverfi þar sem skjót og örugg viðbrögð skipta sköpum til að fyrirbyggja frekari skaða.
Þessi 0,9% natríumklóríð lausn er ísótónísk og líkist náttúrulegum líkamsvökva, sem gerir hana milda og örugga til notkunar á viðkvæmum svæðum eins og augum. Hún vinnur með því að skola burt óhreinindi og aðskotahluti, dregur úr óþægindum og minnkar líkur á fylgikvillum eftir slys.
Ólíkt pH-hlutleysandi lausnum er þessi vara fyrst og fremst ætluð til hreinsunar og skolunar þegar um er að ræða ryk, spón, óhreinindi eða aðra agna mengun. Hún er því lykilþáttur í daglegu öryggisumhverfi á vinnustöðum.
Flöskurnar eru útbúnar vinnuvistfræðilegum augnskálum sem tryggja jafnt og mjúkt flæði, sem auðveldar notkun bæði fyrir slasaða og aðstoðarfólk.
Helstu eiginleikar og tæknilegir kostir
- Hreinsar á áhrifaríkan hátt ryk, óhreinindi og aðskotahluti
- Mild og örugg lausn fyrir augu og sár
- Dregur úr óþægindum og fyrirbyggir fylgikvilla
- Einföld í notkun, einnig við neyðaraðstæður
- Vinnuvistfræðileg augnskál tryggir rétt flæði
- CE merkt samkvæmt reglugerð um lækningatæki (EU) 2017/745
- Hentar bæði færanlegum lausnum og veggfestum stöðvum
Hvað varan er ekki ætluð fyrir
- Ekki ætluð til hlutleysingar á sýrum eða bösum, þar skal nota pH Neutral lausn fyrst
- Ekki leysir upp efni, aðeins skolar og hreinsar
Helstu kostir
- Áreiðanleg lausn fyrir fyrstu hjálp við augn- og sárameiðsl
- Hentar vel við ryk, spón og mengun í iðnaði
- Mild samsetning sem hentar viðkvæmum svæðum
- Auðveld og fljótleg notkun á vettvangi
- Sveigjanlegar pakkningar fyrir mismunandi þarfir
- Samhæf við aðrar Plum neyðarlausnir
Staðlar og samþykktir
| Alþjóðlegir staðlar | Samþykktir framleiðenda | Uppfyllir kröfur |
|---|---|---|
| EU 2017/745 (Medical Device Regulation) | Plum Safety | CE merkt lækningatæki |
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].
Meira fráPlumSkoða allt →

Augnskol frá Plum með 0,9% NaCl augnskoli. Stöðin inniheldur 10 x 20ml túpurnar eru fljótleg lausn til að…

Augnskol pH hlutlaust – Plum pH Neutral 4,9% augnskol sem og sáraskol, hlutleysir sýrur og basa hratt og…

Plum QuickFix Detectable plástrastöð með 90 bláum, málmgreinanlegum textílplástrum. Hentar sérstaklega fyrir matvælaiðnað og matvælavinnslu.

Plum QuickSoft skammtari með sjálflímandi sárabindi er einföld og skilvirk lausn fyrir hraða fyrstu hjálp á vinnustöðum. Hann…

Augnskol Quick Rinse Áfylling 5x20ml 0,9% NaCl sem ætlað er í Quick Rinse augnskol stöðvar og Quick Safe…

Plum Plutect Dual er sérstaklega hugsuð sem húðvörn þar sem verið er að vinna með vatni og efnavöru.

Tveir gegnsæir Plum QuickFix Solo plástraskammtarar í pakka. Afhentir tómir og fylltir með QuickFix plástraáfyllingu eða QuickRinse áfyllingu…

Quick Safe Complete er veggfestur sjúkrakassi sem er gerður úr höggheldu plasti með glæru loki. Öflug og góð…








