VELCRO®

Riflás límdur VELCRO® Hook & Loop PS30 25mm

Verð
502 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

VELCRO® HOOK og LOOP er riflás með góðri límingu (standard PS30), hann fæst í hvítu og/eða svörtu. Riflásinn þarf að velja í sitthvoru lagi ef að þú vilt fá bæði loðna hlutann (LOOP) og stífa hlutann (HOOK). ** Riflásinn er seldur í metravís (minnsta eining er 1 mtr.) en það eru 25 metrar á rúllu **

StaðaÁ lager
Upplýsingar
VörunúmerVeldu lit og tegund Flokkur Stikkorð, Vörumerki

Vörulýsing

Riflás frá fyrirtækinu Velcro sem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á margskonar gerð riflása. VELCRO® HOOK PS30 og LOOP PS30 kemur með góðri límingu á bakhlið, en PS30 stendur fyrir styrkleikann á límingunni.

Hægt er að fá VELCRO® Brand HOOK / LOOP með líminguna PS30 í tveimur breiddum, 25mm og 50mm, hvítan eða svartan.

Hvað þarf ég að kaupa?

  • HOOK (grófa, stífa hlutann) og LOOP (mjúki, loðni hlutann) hlutana þarf að kaupa í sitthvoru lagi til þess að fá báða hluta riflássins (þeir koma ekki í pari).

Sterk líming á riflásnum!

  • Ef að þú ert að leita að mjög sterkri límingu á bakhliðinni þá bjóðum við einnig upp á riflás frá fyrirtækinu Velcro sem er með mjög sterka límingu og mikið grip í riflásnum sjálfum, sá riflás er með PS52 límingu, sem er það sterkasta sem að við bjóðum.

Hver er munurinn á HOOK og LOOP?

Almennt samanstendur riflás af tveimur pörtum og eru þetta nafngiftirnar á riflásnum sem segja til um það hvorn hlutann af riflásnum er verið að velja.

Leiðbeiningar við álímingu

  • Hreinsið vel og þurrkið yfirborð fyrir álímingu.
  • Fjarlægið filmuna af límborðanum, ýtið þéttingsfast yfir borðann.
  • Límingin á borðanum nær fullum styrk eftir 24 klst.

Athugið: Svona riflást hentar ekki til límingar á tauefni, mælaborð, sveigjanlegan vínil eða notkun neðan sjávar/vatns. Áhrif sólarljóss í langan tíma getur skemmt líminguna.

VELCRO® er skráð vörumerki í eigu Velcro BVBA. Notað með leyfi.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd Á ekki við
Framleiðandi

Riflás - litur

Hvítur, Svartur

Riflás - tegund

HOOK (grófi hlutinn), LOOP (loðni hlutinn)

Riflás - breidd [mm]

25

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Meira frá
VELCRO®
Skoða allt →