
PermaRoute
PermaRoute gólfborðar og merki
Gríðarlega slitsterkar og endingargóðar gólfmerkingar frá Heskins. Hægt er að fá PermaRoute bæði sem gólfborða frá 15mm breidd upp í 1168mm rúllur ásamt ýmsum gerðum af merkingum. PermaRoute er sérpöntunarvara og tekur 7–10 virka daga að fá hana til landsins.
PermaRoute gólfborðarnir koma í 14 litum og þar af eru 5 tvískiptir litir, gulur/svartur, rauður/hvítur, grænn/hvítur, svartur/hvítur og rauður/svartur. PermaRoute merkin fást í mörgum útfærslum og koma þau einnig í 14 litum
Í vörulistanum sem hægt er að sjá með því að smella á hnappinn hér að neðan má sjá úrval vöruhúsamerkinga frá Heskins, liti og form.
Skoða vörulista fyrir Heskins gólfmerkingar →
Skoða PermaRoute á vefsíðu Heskins →













PermaRoute gólfmerki fyrir gangandi umferð, merkið er grænt að lit.

PermaRoute gólfmerki fyrir gangandi umferð, merkið er gult að lit.

PermaRoute gólfmerki fyrir lyftaraumferð, merkið er grænt að lit.

PermaRoute gólfmerking fyrir lyftaraumferð, merkið er gult að lit og í stærð 500 x 543mm.



PermaRoute gólfmerking fyrir gangandi umferð, merkið er gult að lit og í stærð 240 x 90mm

