PermaStripe

PermaStripe gólfborðar og merki

Gólfborðar og merki sem eru á meðal slitsterkustu merkinga sem fást á gólf vöruhúsa og vinnustaða. Liturinn er gegnheill í borðanum og því þolir hann að rispast án þess að liturinn hverfi.

PermaStripe fæst bæði sem gólfborði og sem merki. Í vefversluninni eru 50 mm rúllur; 75 mm og 100 mm breiddir, ásamt merkjunum, eru sérpöntun.

Gólfmerkingar og gólfborðar frá Heskins eru í langflestum tilfellum sérpöntun. Afhendingartími er 7–10 virkir dagar frá staðfestri pöntun til framleiðanda. Heskins býður upp á sérskurð á borðum og merkjum sé þess óskað.

PermaStripe fæst í fimmtán útfærslum: tólf heilum litum og þremur tvítóna hættumynstrum, gult/svart, rauður/hvítur og svart/hvítt. Merkin koma í sömu litum. Til viðbótar fæst sjálflýsandi útfærsla, H6901X, sem er utan litakortsins.

Í vörulistanum sem hægt er að sjá með því að smella á hnappinn hér að neðan má sjá úrval vöruhúsamerkinga frá Heskins, liti og form. Litakortið sýnir algenga liti gólfmerkinga og notkun þeirra á vinnustöðum.

Nánar um PermaStripe: efni, uppbygging, lagning og litaval

Skoða PermaStripe á vefsíðu Heskins →