BOSCH

Bosch fyrirtækið í Stuttgart hefur framleitt íhluti í bifreiðar frá árinu 1886.

Lengi vel var heimamarkaðurinn sterkasta vígið fyrir þær vörur sem Bosch var að framleiða fyrir bílaframleiðendur og bílaverkstæði.

Þær nýjungar sem Bosch hefur kynnt til sögunnar í seinni tíð og eru orðin staðalbúnaður hjá mörgum framleiðendum eru m.a. skriðvörn (ESP),   innspýtingar fyrir diesel bifreiðar (Common Rail), leiðsögukerfi (Navigation), hraðastýringu með skynjurum (adaptive cruise control) nætursjón og margt fleira.

Bosch framleiðir í dag mikið úrval af skynjurum fyrir allar bifreiðar sem nýtast t.d. til að fylgjast með hraða, snúningshraða, þrýstingi, hljóðum, loftpúðaskynjara og fleiri þættir eru einnig stýrðir að hluta til með Bosch skynjurum.

Bilanagreiningartölvur eru sérgrein hjá Bosch enda skrifar fyrirtækið hugbúnað fyrir fjölmörg bílafyrirtæki sem notaður er til að vakta vélbúnað og rafkerfi bifreiða.

Næsta kynslóð bifreiða verður vafalaust sjálfkeyrandi að stórum hluta og þar er Bosch þegar í fremstu röð með þúsundir verkfræðinga að störfum til að sinna þessari þróun eingöngu.

Bosch er stærsta fyrirtæki heims sem ekki er skráð á hlutabréfamarkað og er með yfir 400.000 starfsmenn um allan heim.

Það er greypt inní stefnu félagsins að sinna vöruþróun umfram allt annað og þess vegna hefur Bosch verið í fararbroddi í bílgreininni í 70 ár.

BOSCH
Bosch Viftureim 6PK1570, svört reim á hvítum bakgrunni
Viftureim 6PK1570

BOSCH 1987946014 er fjölrifjareim með PK-prófíl. Reimin er með 6 rif og skráða lengd 1570 mm. Staðfestu rétt…

Vnr: 1987946014BOSCH
VæntanlegSjá nánar
Bosch Viftureim 6PK1610, svört reim á hvítum bakgrunni
Viftureim 6PK1610

BOSCH 1987947983 er fjölrifjareim með PK-prófíl. Reimin er með 6 rif og skráða lengd 1610 mm. Staðfestu rétt…

Vnr: 1987947983BOSCH
VæntanlegSjá nánar
Bosch Viftureim 6PK1715, svört reim á hvítum bakgrunni
Viftureim 6PK1715

BOSCH 1987948453 er fjölrifjareim með PK-prófíl. Reimin er með 6 rif og skráða lengd 1715 mm. Staðfestu rétt…

Vnr: 1987948453BOSCH
VæntanlegSjá nánar