Heskins PermaRoute · H6903

PermaRoute gólfborði

Línur, tákn og texti úr einu merkingakerfi. PermaRoute er 0,96 mm gólfborði með glærri PVC-slitfilmu yfir litnum — fyrir leiðsögn og svæðaskiptingu í vöruhúsum, framleiðslu og almannarýmum.

PermaRoute gólfmerkingar afmarka gangbraut og leiðir á iðnaðargólfi
0,96 mmHeildarþykkt með lími
R10Hálkuviðnám skv. DIN 51130
2 árSkilyrt ábyrgð framleiðanda
16 litirLitir, hættumynstur og sjálflýsandi

Skipulag, öryggi og ending

Blár skjöldur með 5S fyrir skipulag í vöruhúsum
5S-skipulag í vöruhúsum
Blár skjöldur með grænu haki fyrir öryggi
Öryggi
Ljósblár demantur sem tákn fyrir gæði
Gæði
Hamar og höggþolið yfirborð sem tákn fyrir slitþol og endingu
Slitþol og ending

Hvað er PermaRoute

PermaRoute er sjálflímandi gólfmerkingakerfi frá Heskins. Rúllur mynda línurnar, tilbúin horn og mót tengja þær saman og tákn, örvar og fótspor sýna hvernig á að nota rýmið. Sami borði getur þannig merkt gönguleið, lyftaraleið, brettastæði og vinnureit.

Sérstaðan er lagskiptingin: 0,15 mm PVC-grunnfilma og 0,55 mm glær slitfilma, alls 0,96 mm með lími. Litur og sérprentun eru varin undir glæra laginu. Þetta er annað efni en gegnheila filman í PermaLean og PermaStripe.

Borðinn er lagður á hreint og þurrt gólf án þurrktíma málningar. Þegar skipulagið breytist má fjarlægja merkinguna; skemmdan kafla má skera burt og endurnýja án þess að endurgera alla línuna.

Svört PermaRoute rúlla sýnir borðann og bakfilmuna

Slitfilman verndar litinn og prentunina

Glær PVC-slitfilma

0,55 mm glært efsta lag tekur við sliti umferðarinnar. Prentaður texti og tákn geta legið undir því í stað þess að vera óvarin á yfirborðinu.

PVC-grunnfilma

0,15 mm burðarlag heldur merkingunni saman. Heildarþykkt með lími er 0,96 mm samkvæmt gagnablaðinu — ekki aðeins þykkt efsta lagsins.

Akrýllím

Gagnablaðið tilgreinir akrýllím og 6,00 kg/25,4 mm viðloðun við stál samkvæmt PSTC-1. Hreinsun, undirlag og góður þrýstingur við lögn skipta máli.

Hvar situr PermaRoute í línunni?

PermaLean H6905PermaRoute H6903PermaStripe H6901
Heildarþykkt0,62 mm0,96 mm1,3 mm
UppbyggingEinsleit lituð PVC-filmaGrunnfilma og glær slitfilmaGegnheil PVC-filma með skáskornum brúnum
Ábyrgð framleiðanda1 ár, skilyrt2 ár, skilyrt3 ár, skilyrt

PermaRoute hentar þegar heildstætt kerfi tákna, lína og prentunar er í forgrunni. Fyrir þynnri línumerkingu er PermaLean annar kostur; fyrir þykkari gegnheila filmu með skáskornum brúnum er það PermaStripe. Sjá samanburð allra gólfmerkinga.

Þykktir samkvæmt gagnablöðum Heskins, 26.04.2024. Ábyrgð er skilyrt samkvæmt vörusíðum framleiðanda.

Litirnir í PermaRoute-línunni

Sextán útfærslur: tíu heilir litir, fimm hættumynstur og sjálflýsandi borði. Litaspjaldið sýnir allt núverandi úrval framleiðandans. Þeir litir sem eiga vöru í vefversluninni tengjast henni; aðrir reitir eru litaviðmið, ekki staðfesting á framboði.

Litirnir á skjánum eru til viðmiðunar — RAL- og Pantone-númerin eru viðmiðið sjálft. Ljósendurkast (LRV) segir hve hátt hlutfall ljóssins yfirborðið skilar til baka, á kvarðanum 0 (alsvart) til 100 (alhvítt); því meiri munur á borða og gólfi, því betur sést merkingin.

RAL-, Pantone- og LRV-gildi fylgja H6903-gagnablaðinu frá 26.04.2024. Sjálflýsandi H6903X kemur af núverandi litaspjaldi Heskins og er ekki í því gagnablaði. Fyrir blátt H6903B segir gagnablaðið Pantone 3985 U en vefsíðan 2985 U; staðfestu litaprufu áður en nákvæm litasamsvörun er pöntuð. Skjámynd er ekki litaprufa.

Tæknilegar upplýsingar

EiginleikiGildiAðferð
Efsta slitfilma0,55 mm glært PVC—
Grunnfilma0,15 mm PVC—
Heildarþykkt með lími0,96 mm—
LímgerðAkrýllím, leysiefnagerð—
Lykkjugrip6,00 kg/25,4 mmPSTC-16
Samloðun við 25 °C≥24 klst.ASTM-7
Viðloðun við stál6,00 kg/25,4 mmPSTC-1
Notkunarhitabil−30 til +70 °C—
BrunaprófStóðst prófEN 13501 / DIN 11925; Exova 2012-1552-1
Pendúlpróf, þurrt102Óháð núningsprófun
Pendúlpróf, blautt24Óháð núningsprófun
HálkuviðnámR10DIN 51130
Yfirborðsviðnám10¹¹ Ω/□—

Heimild: H6903 PermaRoute gagnablað Heskins, 26.04.2024. Framleiðandi tekur fram að gildin séu til viðmiðunar. R10 og pendúlprófin eru ólíkar prófanir; R10 eitt og sér segir ekki að gólf sé öruggt í allri bleytu.

10¹¹ Ω/□ er ekki staðfesting á ESD-vörn. Veldu ekki PermaRoute sem leiðandi eða stöðurafmagnsdreifandi gólfmerkingu án sérstakrar staðfestingar.

Hvar hentar PermaRoute

  • Vöruhús og dreifing: aðgreindar göngu- og akstursleiðir, brettareitir og stæði.
  • Framleiðsla og samsetning: svæðaskipting, 5S-merkingar og staðsetningar búnaðar.
  • Verkstæði og þjónusturými: vinnureitir, leiðir og örugg staðsetning fólks.
  • Almannarými og biðraðir: örvar, fótspor og leiðsögn á gólfinu.

Veldu merkingu eftir undirlagi og umferð, ekki lit einum. Við beygjur lyftara og á stöðum þar sem bretti rekast í línu þarf sérstaklega að skoða álagið. Ábyrgðin nær ekki til þess sem er dregið eða skrapað yfir borðann.

PermaRoute merking á flugstöðvargólfi leiðbeinir gangandi farþegum

Svona er borðinn lagður

  • Hreinsaðu gólfið og fjarlægðu fitu, olíu og ryk. Yfirborðið þarf að vera þurrt.
  • Á gljúpu undirlagi getur þurft grunn. Staðfestu samhæfni við gólfið áður en lagt er.
  • Mældu leiðina og skerðu borðann til. Notaðu tilbúin horn og mót þar sem þau passa.
  • Flettu bakfilmunni af smám saman og stilltu línuna af.
  • Þrýstu borðanum niður með rúllu eftir allri lengdinni.
  • Notaðu viðeigandi kantlímingu þar sem þörf er á og fylgdu leiðbeiningum framleiðanda.

Heskins mælir með 10 °C eða hærri hita við lögn. Ekki rugla því saman við notkunarhitabilið −30 til +70 °C: kalt gólf getur þurft upphitun og undirbúning þótt fullfrágengin merking sé innan notkunarmarka.

Fylgihlutir við lögn

Hreinsir, grunnur, þrýstirúlla og kantlíming hjálpa til við réttan undirbúning og frágang. Veldu fylgihluti eftir undirlagi og álagi.

Myndbönd frá Heskins

Öll sex myndböndin úr núverandi myndbandahluta PermaRoute hjá framleiðandanum: samanburður, uppsetning, viðgerð, kantlíming og dæmi um skipulögð vinnurými.

Vöruhús fyrir og eftir gólfmerkingu
PermaStripe, PermaRoute og PermaLean borin saman
Svona er gólfborði lagður
Viðgerð á skemmdum kafla
Kantlíming og frágangur á brúnum
Vinnslusalur fyrir og eftir 5S-skipulag

PermaRoute í vefversluninni

Rúllur og tilbúin merki eru í PermaRoute-flokknum. Opnaðu vöruna til að sjá verð, útfærslu og skráða lagerstöðu. Vöruheiti eldri táknavara geta sýnt önnur mál en núverandi teikningar; staðfestu mál þegar pantað er.

Formin sem PermaRoute er skorinn í

Núverandi hönnunarhluti Heskins sýnir 38 útstönsuð form, auk tölustafanna 0–9 og bókstafanna A–Z. Þar á meðal eru gangandi vegfarandi og lyftari, en ekki hak og kross sem sjálfstæð tákn. X-laga reitamerki og plúsmerki eru hins vegar í úrvalinu.

Horn, mót og endar

  • PermaRoute útstönsun: 90° horn, ávalt
    90° horn, ávalt Fyrir 50 mm rúllur ZN0063
  • PermaRoute útstönsun: 90° horn, ávalt
    90° horn, ávalt Fyrir 75 mm rúllur ZN0054
  • PermaRoute útstönsun: 90° horn, ávalt
    90° horn, ávalt Fyrir 100 mm rúllur ZN0202
  • PermaRoute útstönsun: 45° horn
    45° horn Fyrir 50 mm rúllur ZN0214
  • PermaRoute útstönsun: 45° horn
    45° horn Fyrir 75 mm rúllur ZN0215
  • PermaRoute útstönsun: 45° horn
    45° horn Fyrir 100 mm rúllur ZN0216
  • PermaRoute útstönsun: t-mót
    T-mót Fyrir 50 mm rúllur ZN0055
  • PermaRoute útstönsun: t-mót
    T-mót Fyrir 75 mm rúllur ZN0217
  • PermaRoute útstönsun: t-mót
    T-mót Fyrir 100 mm rúllur ZN0339
  • PermaRoute útstönsun: 90° horn, skásneitt
    90° horn, skásneitt Fyrir 50 mm rúllur ZN0061
  • PermaRoute útstönsun: 90° horn, skásneitt
    90° horn, skásneitt Fyrir 75 mm rúllur ZN0062
  • PermaRoute útstönsun: 90° horn, skásneitt
    90° horn, skásneitt Fyrir 100 mm rúllur ZN0340
  • PermaRoute útstönsun: endastykki
    Endastykki Fyrir 50 mm rúllur ZN0157
  • PermaRoute útstönsun: endastykki
    Endastykki Fyrir 75 mm rúllur ZN0341
  • PermaRoute útstönsun: endastykki
    Endastykki Fyrir 100 mm rúllur ZN0342

Reitir, hólf og punktar

  • PermaRoute útstönsun: l-horn, breitt
    L-horn, breitt 200 × 200 mm ZN0027
  • PermaRoute útstönsun: t-merki, breitt
    T-merki, breitt 300 × 200 mm ZN0028
  • PermaRoute útstönsun: skákross (x)
    Skákross (X) 300 × 300 mm ZN0029
  • PermaRoute útstönsun: punktur
    Punktur 50 mm í þvermál ZN0035
  • PermaRoute útstönsun: punktur
    Punktur 90 mm í þvermál ZN0034
  • PermaRoute útstönsun: punktur
    Punktur 100 mm í þvermál ZN0023
  • PermaRoute útstönsun: línubútur
    Línubútur 150 × 50 mm ZN0021
  • PermaRoute útstönsun: l-horn, mjótt
    L-horn, mjótt 100 × 100 mm ZN0024
  • PermaRoute útstönsun: t-merki, mjótt
    T-merki, mjótt 100 × 150 mm ZN0129
  • PermaRoute útstönsun: plúsmerki (+)
    Plúsmerki (+) 150 × 150 mm ZN0022

Tákn og örvar

  • PermaRoute útstönsun: gangandi vegfarandi
    Gangandi vegfarandi 328 × 500 mm ZN0051
  • PermaRoute útstönsun: lyftari
    Lyftari 543 × 500 mm ZN0038
  • PermaRoute útstönsun: beygjuör (vinstri eða hægri)
    Beygjuör (vinstri eða hægri) 300 × 230 mm ZN0344
  • PermaRoute útstönsun: ör
    Ör 100 × 200 mm ZN0020
  • PermaRoute útstönsun: ör, lítil
    Ör, lítil 100 × 65 mm ZN0009
  • PermaRoute útstönsun: ör, stór
    Ör, stór 300 × 230 mm ZN0012
  • PermaRoute útstönsun: ör, mjög stór
    Ör, mjög stór 1000 × 565 mm ZN0333
  • PermaRoute útstönsun: ör, stutt
    Ör, stutt 90 mm ZN0050

Fótspor og staðsetningarmerki

  • PermaRoute útstönsun: fótspor, iljar
    Fótspor, iljar 280 × 105 mm ZN0201
  • PermaRoute útstönsun: fótspor, berfætt (lítil)
    Fótspor, berfætt (lítil) 57 × 104 mm ZN0010
  • PermaRoute útstönsun: fótspor, berfætt
    Fótspor, berfætt 120 × 210 mm ZN0011
  • PermaRoute útstönsun: skósólar
    Skósólar 240 × 90 mm ZN0013
  • PermaRoute útstönsun: stígvélaför
    Stígvélaför 300 × 120 mm ZN0016

Tölustafir og bókstafir

Heiti svæðis, númer stæðis eða röð hillu — stafirnir eru stakar útstönsanir sem raðast á gólfið eins og þarf.

Tölustafir Hæð 95 mm · 180 mm · 300 mm

  • 0
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9

Bókstafir Hæð 95 mm · 180 mm

  • A
  • B
  • C
  • D
  • E
  • F
  • G
  • H
  • I
  • J
  • K
  • L
  • M
  • N
  • O
  • P
  • Q
  • R
  • S
  • T
  • U
  • V
  • W
  • X
  • Y
  • Z

ZN-númerin eru stönsunarnúmer framleiðandans og það sem við gefum upp þegar pantað er. Formin fást í sömu litum og rúllurnar, eru sérpöntun og kalla á lágmarksmagn. Sé formið ekki á listanum er það skorið eftir teikningu.

Mál og form fylgja núverandi Design-hluta Heskins, skoðuðum 31.10.2026. Tölur eru sýndar í 95, 180 og 300 mm hæð og bókstafir í 95 og 180 mm. Framleiðandinn endurtekur nokkra ZN-kóða milli stafa; því eru aðeins sýnd hæðarviðmið fyrir stafasettið og réttir pöntunarkóðar staðfestir við tilboð.

Sérlitir og prentun undir slitfilmu

Heskins býður sérprentun með texta, lógóum og táknum og getur unnið eftir RAL-, Pantone- eða NCS-litaviðmiði. Lágmarksmagn og útfærsla eru staðfest í hverju verkefni; litaspjald framleiðanda er ekki lagerlisti Kemi.

Sendu mál svæðisins, breidd línanna, litakóða, form og fjölda. Ef prenta á texta skaltu láta orðalag og mál fylgja. Við förum yfir efni, undirlag og umferð áður en lausnin er valin.

Algengar spurningar

Hver er munurinn á PermaRoute og PermaLean?

PermaRoute er lagskiptur: 0,15 mm grunnfilma og 0,55 mm glær slitfilma, alls 0,96 mm með lími. PermaLean er þynnri einsleit lituð filma, alls 0,62 mm. PermaRoute býður meðal annars prentun varða undir slitfilmunni.

Hversu löng er ábyrgð framleiðanda?

Heskins gefur tveggja ára skilyrta ábyrgð frá kaupum. Hún takmarkast við endurnýjun PermaRoute og nær ekki til hluta sem eru dregnir, ýtt eða skrapað yfir borðann, svo sem vörubretta og sleða.

Þýðir R10 að borðinn sé hálkulaus í bleytu?

Nei. R10 er flokkun samkvæmt DIN 51130. Gagnablaðið gefur líka pendúlgildi 102 á þurru yfirborði og 24 á blautu. Meta þarf bleytu, óhreinindi og aðstæður á staðnum sérstaklega.

Eru allir sextán litirnir til í vefversluninni?

Nei. Spjaldið sýnir núverandi litaúrval framleiðanda, ekki lagerstöðu. Fimm rúllulitir tengjast vörum í vefversluninni. Fyrir aðra liti, breiddir og sérprentun þarf að staðfesta framboð og tilboð.

Við hvaða hita á að leggja PermaRoute?

Framleiðandinn mælir með 10 °C eða hærri hita við lögn. Notkunarhitabilið eftir lögn er −30 til +70 °C samkvæmt gagnablaðinu. Undirlagið þarf alltaf að vera hreint og þurrt.

Hvernig er skemmdur kafli lagfærður?

Skerðu skemmda kaflann burt, hreinsaðu undirlagið og leggðu nýjan bút í sömu breidd. Þrýstu vel niður og skoðaðu hvort álag á brún eða undirlag hafi valdið skemmdinni áður en viðgerðinni er lokið.

Setjum skýrar leiðir á gólfið

Segðu okkur frá rýminu, gólfinu og umferðinni. Við aðstoðum við val á línum, litum og táknum sem mynda eitt læsilegt kerfi. Síminn er 415 4000.