Heskins PermaLean · H6905

PermaLean gólfborði

PermaLean er þynnsti iðnaðargólfborði Heskins — 0,62 mm á þykkt, einsleit lituð PVC-filma með þrýstivirku akrýllími. Hann er lagður á hreint gólf án sérverkfæra og heldur merkingunni skýrri þar sem bæði gangandi umferð og lyftarar fara um.

Vöruhúsgólf merkt með PermaLean: gular gönguleiðir, bláir brettareitir, svart-hvít gangbraut og rauðlínað svæði fyrir vörur í bið
0,62 mmHeildarþykkt með lími
R10Hálkuviðnám skv. DIN 51130
−30 til +70 °CUppgefið notkunarhitabil
11 litirHeilir litir og hættumynstur í línunni

Hvað er PermaLean

PermaLean er gólfmerkingarborði fyrir iðnaðarhúsnæði: línur, reitir, form, tákn og tölustafir sem segja hvar má ganga, hvar má aka og hvar hlutir eiga að standa. Heskins hannaði hann sem þynnstu og hagkvæmustu útfærsluna í Perma-línunni — sama hugmynd og PermaStripe og PermaRoute, í þynnra og ódýrara efni.

Þynnri borði er ekki bara ódýrari. Lægra snið þýðir minna sem hjól og brettahorn geta tekið í, og þar með færri staðir þar sem brúnin lyftist. Á móti kemur að hann er ekki jafn harðger og þykkari línurnar, svo valið á milli þeirra snýst um hversu hörð umferðin er — ekki um hvor er „betri“.

Ólíkt gólfmálningu þarf engan þurrktíma: svæðið er tekið í notkun um leið og borðinn er kominn niður, og skemmdur kafli er skorinn burt og endurnýjaður á staðnum í stað þess að mála yfir allt saman.

Hjá okkur er hann til í 25 mm og 50 mm rúllum, 30 metrum á rúllu, í tíu litum úr ellefu lita línu Heskins — og í 200 mm breidd í gulu. Allt annað, frá 15 mm reitalínu upp í 1260 mm breiða rein og útstönsuð form, er sérpöntun beint úr móðurrúllunni.

Svört PermaLean rúlla, H6905N, með endann flettan fram

Uppbygging

Tvær ólíkar útfærslur í sömu línu

Heilir litir

Heilir litir eru framleiddir úr einni einsleitri, litaðri PVC-filmu sem er 0,5 mm þykk í gegn. Liturinn er allur massinn, ekki yfirborðslag, svo rispa eða slit afhjúpar ekki annan lit undir.

Þess vegna má skera borðann til, stansa úr honum form og gera við hann á staðnum án þess að samskeytin stingi í augu.

Hættumynstur

Svart/gult, rautt/hvítt og svart/hvítt eru ekki heilir litir heldur mynstur, og þar fer Heskins aðra leið: mynstrið er prentað á 250 µm grunnfilmu og síðan er 250 µm glær slitfilma lagskipt yfir það.

Mynstrið liggur því inni í efninu en ekki ofan á því og það er ekki hægt að rispa það af — sem er einmitt það sem gerist við prentuð hættuborða af ódýrari gerð.

Límið

Límið er breytt leysiefnaakrýl, 0,12 mm þykkt og þrýstivirkt. Gagnablað Heskins gefur upp viðloðun við ryðfrítt stál 25,2 N/25 mm eftir 20 mínútur og 28,0 N/25 mm eftir sólarhring (FINAT FTM1) — límið heldur áfram að byggja upp viðloðun fyrsta sólarhringinn eftir lögn.

Í reynd þýðir það tvennt: þrýstu borðanum niður með rúllu alla leiðina, og ekki dæma verkið út frá fyrstu klukkustundinni.

PermaLean, PermaRoute eða PermaStripe?

Allar þrjár línurnar koma frá Heskins, eru lagðar eins og eru gefnar upp með sama hálkuviðnámi og sama hitabili. Munurinn liggur í þykktinni og uppbyggingunni — og þar með í því hversu harða umferð þær eru ætlaðar fyrir.

PermaLean H6905PermaRoute H6903PermaStripe H6901
Heildarþykkt0,62 mm0,96 mm1,3 mm
UppbyggingEinsleit lituð PVC-filma, 0,5 mm0,15 mm grunnfilma + 0,55 mm glær slitfilma1 mm PVC
Hálkuviðnám (DIN 51130)R10R10R10
Pendúlpróf, þurrt / blautt102 / 24102 / 24—
Notkunarhitabil−30 til +70 °C−30 til +70 °C−30 til +70 °C
Togstyrkur158 N/25 mm—>200 N/25 mm
Dæmigerð notkunMerkingar í almennu vöruhúsi og framleiðslu þar sem þynnri og hagkvæmari lausn dugarMillistig — meira slit en PermaLean ræður viðHarðasta umferðin og lengsti endingartíminn

Heimild: gagnablöð Heskins fyrir H6905, H6903 og H6901, öll dagsett 26.04.2024. Viðloðunartölur eru ekki í töflunni af því að línurnar eru mældar með ólíkum aðferðum (FINAT FTM1 í N/25 mm á móti PSTC-1 í kg/25,4 mm) og tölurnar eru því ekki samanburðarhæfar. Heskins tekur fram að gildin séu til viðmiðunar.

Litir

Litir í PermaLean-línunni

Átta heilir litir og þrjú hættumynstur. Smelltu á lit til að fara beint á réttu útfærsluna í vefversluninni — RAL- og Pantone-gildin undir hverjum reit eru viðmiðunin, ekki skjámyndin.

Tæknilegar upplýsingar

EiginleikiGildiAðferð
FilmaEinsleit lituð PVC-filma—
Þykkt filmu0,5 mmÞykktarmæling (calliper)
LímtegundBreytt leysiefnaakrýl—
Þykkt líms0,12 mm—
Heildarþykkt0,62 mm—
Viðloðun við ryðfrítt stál, 20 mín.25,2 N/25 mmFINAT FTM1
Viðloðun við ryðfrítt stál, 24 klst.28,0 N/25 mmFINAT FTM1
Togstyrkur158 N/25 mmLloyd T5100, 500 N álagsnemi
Lenging við slit294 %Lloyd T5100, 500 N álagsnemi
HálkuviðnámR10DIN 51130
Pendúlpróf, þurrt yfirborð102Pendúll
Pendúlpróf, blautt yfirborð24Pendúll
Notkunarhitabil−30 til +70 °C—
Lágmarkshiti við lögn10 °C—
Hámarksstærð framleiðslurúllu1260 mm × 100 m—
Ábyrgð framleiðanda1 ár, skilyrt—

Heimild: gagnablað Heskins fyrir H6905 PermaLean, dagsett 26.04.2024. Prófanir á límingu og togi voru gerðar af Adhesive Technical Services Ltd og núningsprófin á óháðri rannsóknarstofu; Heskins tekur fram að gildin séu til viðmiðunar.

Notkunarsvið

Hvar PermaLean á heima

Gulur PermaLean gólfborði markar geymslusvæði við vörubretti í vöruhúsi

Línur og afmörkun

Gönguleiðir, akstursleiðir, geymslureitir og hættusvæði. Borðinn kemur í 25 mm og 50 mm rúllum á lager og fæst í breiddum frá 15 mm upp í 1260 mm í sérpöntun, svo sama efnið dugar fyrir mjóa reitalínu og breiða akstursrein.

Blá fótsporamerki úr PermaLean sýna gönguleið á steyptu gólfi

Fótspor og staðsetningarmerki

Útstönsuð form merkja hvar á að standa, hvar bretti eiga heima og hvar hlutir eiga að liggja af. Heskins stansar L-, T- og X-horn, hringi, fótspor, örvar, tölustafi og bókstafi úr sömu filmu og rúllurnar.

Grænt gangandi-vegfarandi tákn og ör úr PermaLean á gólfi þar sem starfsmaður gengur hjá

Táknmerki og leiðbeiningar

Tákn, örvar og texti á gólfinu segja það sem skilti í augnhæð segja ekki — þau eru þar sem fólk er að horfa þegar það gengur. Heskins prentar líka texta eftir pöntun í sömu filmu.

Dæmigerð umhverfi

  • Vöruhús og dreifingarmiðstöðvar — akstursleiðir, gönguleiðir og brettastæði
  • Framleiðslu- og samsetningarsalir, þar sem 5S-skipulag kallar á fastar merkingar
  • Verkstæði og þjónustuhús — afmörkun vinnuplássa og tækjastæða
  • Lager- og verslunarrými að baki afgreiðslu
  • Flugstöðvar, móttökur og önnur rými þar sem beina þarf fólki í biðraðir

5S og sjónræn stjórnun

Gólfmerkingar eru oftast fyrsta skrefið þegar 5S-verklag er innleitt: þegar búið er að ákveða hvar hver hlutur á að vera þarf gólfið sjálft að segja það. Lína um brettastæði er áminning sem enginn þarf að lesa.

Litakerfið er það sem gerir merkinguna læsilega úr fjarlægð — einn litur fyrir gönguleiðir, annar fyrir akstursleiðir, sá þriðji fyrir vörur í bið. Litaspjaldið hér að ofan sýnir hvaða litir eru í boði og RAL-gildin á bak við þá, svo hægt er að skrifa litakerfið niður og panta eins næst.

Sama gildir um breiddirnar: ein breidd fyrir gönguleiðir og önnur fyrir reiti gerir merkinguna læsilega áður en nokkur les litinn. Þegar kerfið er komið niður á blað er viðhaldið einfalt — sami kóði, sama breidd, sami litur næst þegar kafli er endurnýjaður.

Myndin er úr vinnslusal Siemens, merktum með gólfborðum frá Heskins.

Vinnslusalur Siemens: gular akstursleiðir, svart-gular gangbrautir og gönguleiðatákn úr Heskins gólfborðum

Svona er borðinn lagður

Verkið sjálft er einfalt og þarf engin sérverkfæri — það sem ræður endingunni er undirbúningurinn og hitinn, ekki handbragðið.

  1. Hreinsaðu gólfið. Yfirborðið þarf að vera hreint, þurrt og laust við fitu, olíu og ryk. Heskins notar ísóprópanól-hreinsi í sínum leiðbeiningum; á gljúpu eða mjög sogandi gólfi er grunnur lagður fyrst.
  2. Mældu og skerðu. Rúllaðu borðanum út í áætlaða lengd og skerðu hann til með hníf eða skærum.
  3. Flettu bakfilmunni af og byrjaðu á öðrum endanum frekar en að taka hana alla af í einu — þannig er auðveldara að halda línunni beinni.
  4. Leggðu borðann niður og réttu hann af áður en þú þrýstir honum fast. Límið grípur strax, svo það borgar sig að stilla af fyrst.
  5. Rúllaðu yfir alla lengdina. Akrýllím er þrýstivirkt — viðloðunin verður til við þrýstinginn, ekki við tímann einan. Viðloðunin heldur svo áfram að byggjast upp fyrsta sólarhringinn.
  6. Lokaðu brúnunum með Edge Fix þar sem umferð vinnuvéla er mest eða þar sem borðinn endar úti á miðju gólfi. Það er brúnin sem lyftist fyrst, ekki miðjan.

Lagningarhitinn er sá þáttur sem oftast klikkar hér á landi: Heskins gefur upp 10 °C lágmark og það á við um gólfið sjálft, ekki bara loftið í salnum. Óupphitað vöruhús að vetri er undir mörkunum þótt hitamælirinn á veggnum sýni annað.

Fylgihlutir

Rúlla, grunnur og kantlíming

Þrennt lengir líftíma merkingar meira en nokkuð annað: þrýstirúllan sem pressar borðann niður, grunnur á gljúpu gólfi svo límið nái festu, og kantlíming á þeim brúnum sem umferðin tekur í. Allt saman er ætlað með þessum borðum.

Myndbönd

Myndbönd frá Heskins

Framleiðandinn sýnir bæði útkomuna — vöruhús og vinnslusal fyrir og eftir — og handtökin: hvernig borðinn er lagður, hvernig skemmdur kafli er lagfærður og hvernig brúnirnar eru frágengnar.

Vinnslusalur fyrir og eftir 5S-skipulag
Vöruhús fyrir og eftir merkingu
PermaStripe, PermaRoute og PermaLean borin saman
Svona er gólfborði lagður
Viðgerð á skemmdum kafla
Kantlíming og frágangur á brúnum

Vörurnar

PermaLean í vefversluninni

Á lager eru 25 mm og 50 mm rúllur í tíu litum, 30 metrar á rúllu, auk 200 mm gulrar. Smelltu á vöruna til að sjá verð, lagerstöðu og litina sem eru til.

Hinar línurnar

PermaRoute og PermaStripe

Þykkari útfærslurnar fyrir harðari umferð. Sama efnisfjölskylda, sama lagning og sama hálkuviðnám — meira efni á milli gólfsins og umferðarinnar.

Útstönsuð form

Formin sem PermaLean er skorinn í

Borðinn er ekki bara rúlla. Heskins stansa sama efnið í horn, mót, tákn, fótspor og stafi, svo heil gólfmerking — beygjur, reitir, leiðsögn og heiti svæða — verði úr einu og sama efninu, í sama lit og með sama sliti og línan sjálf.

Horn, mót og endar

Tengistykkin loka hornum og mótum svo línan haldist heil þar sem hún beygir eða greinist. Hvert stykki er skorið í stærð sem passar við breidd rúllunnar — 50, 75 eða 100 mm.

  • PermaLean útstönsun: 90° horn, ávalt
    90° horn, ávalt Fyrir 50 mm rúllur ZN0063
  • PermaLean útstönsun: 90° horn, ávalt
    90° horn, ávalt Fyrir 75 mm rúllur ZN0054
  • PermaLean útstönsun: 90° horn, ávalt
    90° horn, ávalt Fyrir 100 mm rúllur ZN0202
  • PermaLean útstönsun: 90° horn, skásneitt
    90° horn, skásneitt Fyrir 50 mm rúllur ZN0061
  • PermaLean útstönsun: 90° horn, skásneitt
    90° horn, skásneitt Fyrir 75 mm rúllur ZN0062
  • PermaLean útstönsun: 90° horn, skásneitt
    90° horn, skásneitt Fyrir 100 mm rúllur ZN0340
  • PermaLean útstönsun: 45° horn
    45° horn Fyrir 50 mm rúllur ZN0214
  • PermaLean útstönsun: 45° horn
    45° horn Fyrir 75 mm rúllur ZN0215
  • PermaLean útstönsun: 45° horn
    45° horn Fyrir 100 mm rúllur ZN0216
  • PermaLean útstönsun: t-mót
    T-mót Fyrir 50 mm rúllur ZN0055
  • PermaLean útstönsun: t-mót
    T-mót Fyrir 75 mm rúllur ZN0217
  • PermaLean útstönsun: t-mót
    T-mót Fyrir 100 mm rúllur ZN0339
  • PermaLean útstönsun: endastykki
    Endastykki Fyrir 50 mm rúllur ZN0157
  • PermaLean útstönsun: endastykki
    Endastykki Fyrir 75 mm rúllur ZN0341
  • PermaLean útstönsun: endastykki
    Endastykki Fyrir 100 mm rúllur ZN0342

Reitir, hólf og punktar

Merkin sem afmarka stæði, bretti og tækjapláss: horn á hvert horn reitsins, kross eða plús þar sem reitir mætast, punktur þar sem eitt stakt pláss á að vera.

  • PermaLean útstönsun: l-horn, breitt
    L-horn, breitt 200 × 200 mm ZN0027
  • PermaLean útstönsun: t-merki, breitt
    T-merki, breitt 300 × 200 mm ZN0028
  • PermaLean útstönsun: skákross (x)
    Skákross (X) 300 × 300 mm ZN0029
  • PermaLean útstönsun: l-horn, mjótt
    L-horn, mjótt 100 × 100 mm ZN0024
  • PermaLean útstönsun: t-merki, mjótt
    T-merki, mjótt 100 × 150 mm ZN0129
  • PermaLean útstönsun: plúsmerki (+)
    Plúsmerki (+) 150 × 150 mm ZN0022
  • PermaLean útstönsun: línubútur
    Línubútur 150 × 50 mm ZN0021
  • PermaLean útstönsun: punktur
    Punktur Ø 50 mm ZN0035
  • PermaLean útstönsun: punktur
    Punktur Ø 90 mm ZN0034
  • PermaLean útstönsun: punktur
    Punktur Ø 100 mm ZN0023

Tákn og örvar

Umferðarstýring og leiðsögn á gólfinu — hvert á að ganga, hvert lyftarar mega fara, hvað er í lagi og hvað ekki.

  • PermaLean útstönsun: gangandi vegfarandi
    Gangandi vegfarandi 328 × 500 mm ZN0051
  • PermaLean útstönsun: lyftari
    Lyftari 543 × 500 mm ZN0038
  • PermaLean útstönsun: hak
    Hak 200 × 200 mm ZN0004
  • PermaLean útstönsun: kross
    Kross 200 × 200 mm ZN0005
  • PermaLean útstönsun: ör
    Ör 100 × 200 mm ZN0020
  • PermaLean útstönsun: ör, lítil
    Ör, lítil 100 × 65 mm ZN0009
  • PermaLean útstönsun: ör, stór
    Ör, stór 300 × 230 mm ZN0012
  • PermaLean útstönsun: ör, mjög stór
    Ör, mjög stór 1000 × 565 mm ZN0333
  • PermaLean útstönsun: ör, stutt
    Ör, stutt 90 mm ZN0050
  • PermaLean útstönsun: beygjuör (vinstri eða hægri)
    Beygjuör (vinstri eða hægri) 300 × 230 mm ZN0344

Fótspor og staðsetningarmerki

Fótsporin segja fólki hvar það á að standa: við stjórnborð, í biðröð, á öruggum stað meðan vél gengur.

  • PermaLean útstönsun: fótspor, iljar
    Fótspor, iljar 280 × 105 mm ZN0201
  • PermaLean útstönsun: fótspor, berfætt (lítil)
    Fótspor, berfætt (lítil) 57 × 104 mm ZN0010
  • PermaLean útstönsun: fótspor, berfætt
    Fótspor, berfætt 120 × 210 mm ZN0011
  • PermaLean útstönsun: skósólar
    Skósólar 240 × 90 mm ZN0013
  • PermaLean útstönsun: stígvélaför
    Stígvélaför 300 × 120 mm ZN0016

Tölustafir og bókstafir

Heiti svæðis, númer stæðis eða röð hillu — stafirnir eru stakar útstönsanir sem raðast á gólfið eins og þarf.

Tölustafir Hæð 95 mm · 180 mm · 300 mm

  • 0
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9

Bókstafir Hæð 95 mm · 180 mm

  • A
  • B
  • C
  • D
  • E
  • F
  • G
  • H
  • I
  • J
  • K
  • L
  • M
  • N
  • O
  • P
  • Q
  • R
  • S
  • T
  • U
  • V
  • W
  • X
  • Y
  • Z

ZN-númerin eru stönsunarnúmer framleiðandans og það sem við gefum upp þegar pantað er. Formin fást í sömu litum og rúllurnar, eru sérpöntun og kalla á lágmarksmagn. Sé formið ekki á listanum er það skorið eftir teikningu.

Sendu okkur lista yfir form, lit og fjölda og við verðleggjum verkið.

Sérpöntun: breiddir, form og prentun

PermaLean er framleiddur í 1260 mm móðurrúllum og Heskins sker þær niður eftir pöntun. Það sem er ekki á lager hjá okkur er því ekki ófáanlegt — það er sérpöntun.

Breiddir

Rúllur í hvaða breidd sem er frá 15 mm upp í 1260 mm.

Útstönsuð form

Fjörutíu stönsuð form — horn, mót, tákn, fótspor og stafir: sjá formin öll.

Prentun

Texti og tákn prentuð í filmuna — til dæmis heiti svæðis eða reits á gólfinu sjálfu. Sérsmíðuð form eru líka möguleg.

Sérsmíði og prentun kalla á lágmarksmagn og í sumum tilvikum verkfærakostnað. Sendu okkur breidd, lit, form og magn og við verðleggjum verkið.

Þarftu formin strax? Tilbúin útstönsuð gólfmerki — skófar, gangandi vegfarandi og lyftari — eru til á lager í PermaRoute-efninu og má panta beint: skoða PermaRoute-merkin.

Algengar spurningar

Hvaða undirbúningur þarf á gólfinu?

Gólfið þarf að vera hreint, þurrt og laust við fitu, olíu, ryk og lausar agnir. Á steyptu, máluðu og epoxýhúðuðu gólfi dugar yfirleitt góð hreinsun með ísóprópanól-hreinsi.

Á gljúpu, sandblásnu eða mjög sogandi yfirborði er grunnur lagður fyrst — annars nær límið ekki fullri viðloðun og brúnirnar fara að lyftast. Við eigum bæði grunninn og kantlíminguna frá Heskins.

Við hvaða hita má leggja borðann?

Heskins gefur upp að lagningarhiti eigi að vera 10 °C eða hærri — það á bæði við um loftið og gólfið sjálft. Kalt gólf er algengasta ástæðan fyrir því að merkingar losna í íslensku vöruhúsi.

Þegar borðinn er kominn niður er uppgefið notkunarhitabil hans −30 til +70 °C.

Þolir PermaLean lyftaraumferð?

Já, borðinn er gerður fyrir gólf þar sem bæði gangandi umferð og hjólaumferð fer um, og hættumynstrin eru lagskipt sérstaklega svo mynstrið rispist ekki af.

Ábyrgð Heskins nær hins vegar ekki til þess sem er dregið, ýtt eða skrapað yfir borðann — vörubretti og sleðar eru nefndir sérstaklega. Þar sem bretti eru dregin eftir gólfinu endist engin límmerking, sama hvaða vara er valin.

Hver er munurinn á PermaLean, PermaRoute og PermaStripe?

Fyrst og fremst þykktin og uppbyggingin. PermaLean er þynnstur (0,62 mm) og er einsleit lituð filma. PermaRoute (0,96 mm) er grunnfilma með glærri slitfilmu yfir. PermaStripe (1,3 mm) er þykkasta og sterkasta útfærslan.

Allar þrjár línurnar eru gefnar upp með sama hálkuviðnámi (R10 skv. DIN 51130) og sama hitabili (−30 til +70 °C). Samanburðartaflan hér að ofan setur þær hlið við hlið.

Hvað endist PermaLean?

Heskins veitir eins árs skilyrta ábyrgð frá kaupdegi og hún takmarkast við endurnýjun á borðanum sjálfum. Hún nær ekki til skemmda af því sem dregið er eða skrapað yfir hann.

Raunverulegur endingartími ræðst af gólfinu, undirbúningnum og umferðinni. Hreint gólf, réttur lagningarhiti og kantlíming á útsettum brúnum skipta meira máli fyrir endinguna en nokkuð annað.

Fæst PermaLean í öðrum breiddum, formum eða með prentun?

Já. Heskins framleiðir PermaLean í 1260 mm móðurrúllum og sker þær niður í hvaða breidd sem er frá 15 mm upp í 1260 mm. Útstönsuð form — horn, örvar, fótspor, hringir, tölustafir og bókstafir — eru í stöðluðu úrvali, og sérsmíðuð form og prentaður texti eru möguleg gegn lágmarksmagni.

Á lager hjá okkur eru 25 mm og 50 mm rúllur auk 200 mm gulrar. Allt annað er sérpöntun — sendu okkur fyrirspurn með breidd, lit, formi og magni og við verðleggjum það.

Hvernig er skemmdur kafli lagfærður?

Skerðu skemmda kaflann burt með hníf eftir reglustiku, hreinsaðu undirlagið og leggðu nýjan bút í sömu breidd. Af því að liturinn er sami í gegn á heilum litum sést samskeytið varla.

Þetta er kosturinn við límmerkingu fram yfir málningu: viðgerðin tekur mínútur og svæðið er nothæft strax á eftir.

Má nota PermaLean utandyra?

Heskins kynnir PermaLean sem gólfborða fyrir innanhússgólf í iðnaði og gefur ekki upp utanhússnotkun. Uppgefið hitabil (−30 til +70 °C) á við notkunarhita vörunnar en segir ekkert um veðrun, UV-álag eða hálku í bleytu utandyra.

Ef verkefnið er utandyra skaltu hafa samband áður en pantað er — við förum yfir hvað á við.

Ætlarðu að merkja gólf?

Segðu okkur hvað á að merkja, hvers konar gólf það er og hversu hörð umferðin er — við förum yfir hvort PermaLean dugar eða hvort þykkari línan á betur við, og hvað þarf af grunni og kantlímingu. Síminn er 415 4000.