Nikwax

Nikwax Tent & Gear Solarproof

Vörunúmer nw3a2
Verð
2.695 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Nikwax Tent & Gear SolarProof® veitir tjöldum og útivistarbúnaði vatnsvörn og UV-vörn, endurnýjar fráhrindingu og lengir endingu.

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmernw3a2 Strikamerki5020716365205 Flokkar, Stikkorð, , , VörumerkiEfnið er tilbúið til notkunar

Vörulýsing

Nikwax Tent & Gear SolarProof® er vatnsvörn í spreyformi. Inniheldur sólarvörn og ver efnið gegn útfjólubláum geislum sólar. Nikwax Tent & Gear SolarProof  er ætlað til þess að vatns- og rakaverja tjöld og ýmislegt annað úr synþetískum efnum t.d. bakpokum, töskur og margskonar útivistarfatnað.

Nikwax Tent & Gear SolarProof er lyktarlítið og ólíkt mörgum öðrum vatnsvarnarefnum þá má bera Nikwax Tent & Gear á bæði þurra sem og raka fleti.

Athugið: Til að sem bestur árangur náist þá þarf að þrífa flötinn vel áður en efnið er borið á, ekki er þörf á því að þurrka það áður en Nikwax Tent & Gear SolarProof er borið á.

Notkunarleiðbeiningar

  • Best er að hafa flötinn á hörðu yfirborði eða hafa tjaldið spennt svo þægilegra sé að bera á yfirborðið.
  • Hristið flöskuna vel fyrir notkun.
  • Úðið efninu jafnt yfir utanvert tjaldið eða efnið sem rakaverja úr c.a. 15cm fjarlægð.
  • Bíðið í 2 mínútur. Fjarlægið umframefni með rökum klút.
  • Passið það að efnið hafi farið jafnt yfir allan flötinn sem á að rakaverja.

50ml af efninu duga á 1m², þó veltur það á ástandi efnisins sem borið er á, þykkari efni taka meira til sín en t.d. þunn nælontjöld.

*** Það er góð regla við notkun á öllum efnavörum að byrja ávallt á því að prófa þau á lítt sjáanlegum stað. Ástæða þess er að sjá hvernig flöturinn/yfirborðið bregst við efninu sem verið er að nota. Við notkun á Nikwax Tent & Gear SolarProof geta komið rákir eða strikamyndun af umframmagni sem borið er á flötinn.

Tæknilegar upplýsingar

Eiginleiki Upplýsingar
Vörutegund Vatnsvarnar- og UV-varnarúði
Notkunarsvið Tjöld, bakpokar, skyggni, hlífar og yfirbreiðslur
Efni sem hentar Synþetísk veðurheld textílefni, meðal annars nylon og pólýester
Áferð Úði
Ráðlögð notkun Borið á hreint og rakt yfirborð
Þurrkun Loftþurrkun
Notkunarmagn Um 50 ml á 1 m², fer eftir ástandi efnis
Fjarlægð við úðun Um 15 cm frá yfirborði
Virknitími fyrir afþurrkun Um 2 mínútur
Umbúðastærð 500 ml
PFAS Án PFAS-efna
Eldfimi Ekki eldfimt

Hvernig á að nota Nikwax Tent & Gear Solarproof

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,50 kg
Framleiðandi

Magn

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Meira frá
Nikwax
Skoða allt →