Lanxess

Rely+On Virkon sótthreinsiefni (töflur)

Verð

Hafðu samband við sölumann til að fá upplýsingar um verð og afhendingu.

Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Rely+On™ Virkon™ er breiðvirkt víruseyðandi sótthreinsiefni, einstök formúla. Virkar vel á fjölmargar sjúkdómsvaldandi lífverur. Til notkunar á heilbrigðisstofnunum, rannsóknarstofum fyrir meinafræði og líffræðiöryggi, meðferðarstofum, dvalarheimilum, skólum og fleiri stöðum.

Fylgiskjöl7 skjöl

StaðaVara væntanleg

Vörulýsing

Breiðvirk formúla Rely+On™ Virkon™ er einstök. Engin önnur sótthreinsiefni búa yfir jafn kraftmikilli samsetningu eða jafn víðtæku safni gagna um virkni og öryggisprófanir. Það sameinar sveigjanleika í notkun og fjölþætta virkni á harða fleti og þegar áskoranirnar eru lífrænar. Þessir eiginleikar gera Rely+On™ Virkon™ að sjálfgefnu sótthreinsiefni til að nota á heilbrigðisstofnunum, rannsóknarstofum fyrir meinafræði og líffræðiöryggi, meðferðarstofum og á dvalarheimilum.

Rely+On™ Virkon™ hefur færri takmarkanir þegar kemur að meðhöndlun og notkun en margar aðrar sótthreinsivörur og flokkast hvorki sem skaðlegt né ertandi bæði í duftformi og til útþynningar, í samræmi við reglur ESB um flokkun og merkingar á efnablöndum.

Rely+On™ Virkon™ kemur í boxi sem að inniheldur 50 stk af 5 gr sótthreinsitöflum.

Virkni

Rely+On™ Virkon™ myndar oxíð í aðalefnum og efnasamböndum, eins og próteinum, sem veldur útbreiddum skemmdum og síðar óvirkni/eyðileggingu örveranna.

Engar rannsóknir benda til þess að sjúkdómsvaldandi bakteríu-lífverur þrói með sér viðnám gegn Rely+On™ Virkon™, ólíkt sumum sótthreinsiefnum.

Sönnuð breiðvirkni-verkun

Óháðar prófanir sýna mikla virkni gegn:

  • rúmlega 100 afbrigðum vírusa í 22 flokkum vírusa
  • rúmlega 400 afbrigðum baktería
  • rúmlega 60 afbrigðum sveppa og gersveppa

með því að nota margs konar snertitíma, – hitastig og stig lífrænna áskorana.

NOTKUN: Til að undirbúa 1% lausn skal bæta 1 töflu við hverja 500 ml af volgu vatni. Leyfið töflunni að leysast upp að fullu. Vinsamlega skoðið notkunarleiðbeiningarnar fyrir tiltekna notkun.

VARÚÐARRÁÐSTAFANIR: Notið sæfiefni á öruggan hátt. Lesið ávallt allar leiðbeiningarnar vandlega fyrir notkun. Skoðið gagnablað fyrir öryggi og fnotkunarleiðbeiningar vöru fyrir notkun. EINUNGIS NOTAÐ Í ATVINNUSTARFSEMI. Þessi pakkning inniheldur poka með þurrkandi efni sem verður að geymast í ílátinu. Festið lokið á eftir að töflur eru teknar úr íláti og geymið ílátið á köldum og þurrum stað þar sem beint sólarljós kemst ekki að. Rely+On™ Virkon™ 1% lausnir eru stöðugar í 5 daga. Til þess að viðhafa góðar smitvarnir skal skipta um sótthreinsilausn á hverjum degi.

Hreinsun og sótthreinsun á hörðu yfirborði og búnaði

Ástæðurnar geta verið einhver sértækur sýkill eins og salmonella eða Noro veira eða um er að ræða sótthreinsun í kjölfar almennra þrifa með það fyrir augum að draga almennt úr smiti í umhverfi manna og dýra. Við reglubundin þrif og sótthreinsun er skynsamlegt að koma sér upp smitvarnaráætlun þar sem vinnuferli og notkun smitvarnarefna er lýst.

RELY ON™ VIRKON™ er afrakstur margra ára rannsókna- og þróunarstarfs Antec International þar sem áhersla var lögð á hagnýt not slíks efnis, m.a. með tilliti til virkni við lágt hitastig, virknitíma og eins við óhreinindi á hlutum sem ætlunin er að sótthreinsa. Fullyrða má að RELY ON™ VIRKON™ er mest rannsakaða sótthreinsiefnið á markaðnum.

RELY ON™ VIRKON™ er alhliða sótthreinsiefni með víðtæka virkni og fjölbreytt notkunarsvið. Innihaldsefni þess er kalíumvetnissúlfat (oxandi efni), súlfamínsýra, efni til að halda sýrustigi réttu, yfirborðsvirk efni, ólífræn sölt, ilm- og litarefni. Samverkandi áhrif innihaldsefna RELY ON™ VIRKON™ tryggja einstakan áhrifamátt og efnafræðilegan stöðugleika efnisins og skýra þol þess gagnvart lífrænum óhreinindum auk þess sem efnið fer betur með áhöld og tæki en önnur oxandi sótthreinsiefni.

Rely+On™ Virkon™ töflur

Hentugar að geyma og auðveldar í meðhöndlun; einfaldar nákvæma blöndun sótthreinsandi lausnar.

  • 1 x 5 gr töflur – gera 500 millilítra af sótthreinsiefni
  • 10 x 5 gr töflur – gera 5 lítra af sótthreinsiefni
  • 50 x 5 gr töflur – gera 25 lítra af sótthreinsiefni

Mjög auðvelt og fljótlegt að blanda

RELY ON™ VIRKON™ er í töfluformi og er leyst upp í volgu vatni (ca 20-30°C). Ráðlagður styrkur er 1% (1:100, 1 tafla í 500ml). Ljósrauður litur lausnar tryggir sótthreinsiáhrif, liturinn dofnar á 4-7 dögum (fer eftir aðstæðum þar sem efnið er geymt) og þá er blandan orðin óvirk. Til þess að sótthreinsa er nóg að láta efnið liggja í c.a. tíu mínútur. Þá er einnig hægt að úða RELY ON™ VIRKON™ lausn yfir innréttingar og aðra harða yfirborðsfleti. Mikilvægt er að kynna sér öryggisleiðbeiningar fyrir notkun.

ATH! Til að fyrirbyggja tæringu í málmhlutum (óvarðir, mjúkir málmar t.d. kopar og ál) sem sótthreinsaðir eru er ráðlagt að skola af að lokinni sótthreinsun.

Hámarks öryggi fyrir notendur RELY ON™ VIRKON™

RELY ON™ VIRKON™ er mjög öruggt fyrir dýr og menn. Prófanir Evrópu- sambandsins sýna að 1% RELY ON™ VIRKON™ lausn er ekki ertandi fyrir húð eða augu. Gefur ekki frá sér eitraðar gufur og engar sérstakar kröfur eru gerðar um loftræstingu þar sem efnið er notað. RELY ON™ VIRKON™ er umhverfisvænt, það brotnar hratt niður og skilur því engar leifar eftir sig í náttúrunni.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd Á ekki við
Framleiðandi

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Meira frá
Lanxess
Skoða allt →