Agropol bindiefni í plöntuverndarvörur

Vörunúmer agropol 1 l
Verð

Hafðu samband við sölumann til að fá upplýsingar um verð og afhendingu.

Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Agropol er ójónað dreifi- og viðloðunarefni sem nota má með fjölda plöntusæfiefna.

StaðaVara væntanleg
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmeragropol 1 l Flokkar,

Vörulýsing

Agropol er ójónað dreifi- og viðloðunarefni sem nota má með fjölda plöntusæfiefna. Agropol lækkar yfirborðsspennu í úðunarvökvanum. Þar með fæst betri dreifing vökvans á yfirborð blaða og aukin viðloðun. Agropol ýtir þannig undir virkni, og getur tryggt betri árangur við óhagstæðari skilyrði til úðunar, t.d. þegar úðað er á vaxkennt yfirborð, sem vætist illa, eða á skordýr þakin vaxi svo sem kállús, þar sem úðunarvökvi hrekkur af að jafnaði.

Agropol er notað sem bindiefni í Express SX, illgresiseyði frá DuPont.

Virkt efni: Alkóhól etoxýlat 90%

Skömmtun:
Ally . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .50 ml í 100 l vatns
(Notist aðeins með Ally í mjög þurru veðri)
Express SX . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 50 ml í 100 l vatns
Logran 20 WG . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .100 ml í 100 l vatns
Harmony – á korn . . . . . . . . . . . . . . . . . . 50 ml í 100 l vatns
Harmony – á gras . . . . . . . . . . . . . . . . . .100 ml í 100 l vatns
Fusilade X-tra . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .100 ml í 100 l vatns
Roundup og önnur glýfosfatefni . . . . . . 100 ml í 100 l vatns
Önnur verndarefni . . . . . . . . . . 25-100 ml í 100 l vatns

Agropol skal aðeins nota með öðrum plöntuverndarefnum, þegar mælt er með notkun ójónaðra dreifi-/viðloðunarefna með viðkomandi efni. Fylgið leiðbeiningum þeirra efna. Notið ekki Agropol á plöntur í gróðurhúsum eða á skrautjurtir útivið.

Agropol skal bæta við í lokin þegar tankur er næstum fylltur.

Geymsla: Frostfrítt.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 1,00 kg

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].