3M™ 08115 Panel Bonding Adhesive er tveggja þátta epoxý lím (boddýlím í bílaiðnaði), veitir sterka og öfluga bindingu. 3M™ 08115 er hannað til að binda saman stál, ál og SMC. Panel Bonding límið er hægt að nota til að skipta um spjöld fyrir bíla, hurðaplötur, þakplötur og aðar ytri málmplötur. Ítarlegri upplýsingar um vinnslutíma og binditíma límsins má sjá í fylgiskjölum.
Notkun: Undirbúðu fleti vandlega og fylgdu leiðbeiningum framleiðanda um blöndun, vinnslutíma og herslu. Athugaðu samhæfni við efnin sem á að líma eða búnaðinn sem á að nota.













