KwikWeld™ er tveggja þátta viðgerðarefni, þetta er hraðvirk útgáfa af upprunalega J-B Weld “Cold Weld”, veitir sterka og langvarandi viðgerð á margskonar yfirborðsflötum s.s. málmum o.fl. KwikWeld má bora, snitta og slípa eftir að það hefur harðnað. Efnið tekur sig á 4-6 klukkustundum og verður dökkgrátt, hitaþol upp að +150°C og með styrk að 3127psi. Leiðbeiningar Hreinsið / fituhreinsið mjög vel þá fleti sem á að líma. Blöndunarhlutfall er 1:1 – Setjið jafn mikið af A+B efnum og blandið vel saman, gott er að notast við hart spjald til að blanda efnin saman. Blandið hratt og vel þar til sami litur er á allri blöndunni. Setjið blönduna á flötinn sem á að líma/laga og þrýstið vel saman, fjarlægið allt umframefni áður en það harðnar.
Notkun: Undirbúðu fleti vandlega og fylgdu leiðbeiningum framleiðanda um blöndun, vinnslutíma og herslu. Athugaðu samhæfni við efnin sem á að líma eða búnaðinn sem á að nota.







