Alhliða uppsogsmottur eða “Universal” eins og þær eru líka kallaðar henta fyrir flestar gerðir vökva s.s. olíur, kælivökva, vatn og vatnsblandaða vökva o.fl.. Mjög vandaðar, sterkar og góðar mottur að stærð Ø:56cm. Svona mottur henta mjög vel til að setja undir leka, eða þurrka upp olíuvökva sem hafa farið niður og jafnvel til að draga olíu úr vatni.
Uppsogsmotturnar eru 25 stykki í pakka
Uppsogsgeta :
- 0,8 lítrar á 1 uppsogsmottu sem er Ø:56cm
- 20 lítrar á pakkann í heild
Uppsogsmottur og uppsogspulsur eru til þess ætlaðar að sjúga í sig vökva af einhverju tagi sem niður hefur farið t.d. í slysum eða vegna bilaðra véla og búnaðar. Hægt er að fá þessar uppsogsvörur í 3 mismunandi gerðum sem hver og ein er oft tengd litnum sem hver og einn stendur fyrir gerð vökva sem þeir taka í sig.
- Hvítur er “Oil Only” og er eingöngu fyrir olíur hægt að leggja þessar mottur í vatn og þær draga bara olíuna í sig.
- Grár er “Maintainance / Universal” og hentar fyrir ýmsa vökva, olíur, vatn og vatnsblandaða vökva.
- Gulur (Bleikur) er ætlaður er fyrir efnavöru s.s. sýrur, basa og þess háttar vökva.
ATH! Þegar uppsogsmottur eða uppsogspulsur eru orðnar vökvafylltar er þeim fargað í heilu lagi samkvæmt gildandi reglugerðum.











