Uppsogsmottur á rúllu, sérstaklega ætlaðar fyrir efnavörur (sýrur o.þ.h.), mjög vandaðar og sterkar uppsogsmottur sem eru 40cm breiðar og 40m að lengd. Uppsogsmotturnar eru rifgataðar svo það er hægt að taka af rúllunni það magn sem hentar.
Uppsogsgeta:
- 60 lítrar á rúlluna í heild
Uppsogsmottur og uppsogspulsur eru til þess ætlaðar að sjúga í sig vökva af einhverju tagi sem niður hefur farið t.d. í slysum eða vegna bilaðra véla og búnaðar. Hægt er að fá þessar uppsogsvörur í 3 mismunandi gerðum sem hver og ein er oft tengd litnum sem hver og einn stendur fyrir gerð vökva sem þeir taka í sig.
- Hvítur er “Oil Only” og er eingöngu fyrir olíur hægt að leggja þessar mottur í vatn og þær draga bara olíuna í sig.
- Grár er “Maintainance / Universal” og hentar fyrir ýmsa vökva, olíur, vatn og vatnsblandaða vökva.
- Gulur (eða bleikur) er ætlaður er fyrir efnavöru s.s. sýrur, basa og þess háttar vökva.
ATH! Þegar uppsogsmottur eða uppsogspulsur eru orðnar vökvafylltar er þeim fargað í heilu lagi samkvæmt gildandi reglugerðum.