Viftureimar í miklu úrvali
Finndu réttu viftureimina fyrir bílinn þinn út frá bílnúmeri í varahlutaleitinni hér að ofan
Viftureimar eru mikilvægur hluti af reimdrifi vélarinnar og sjá um að flytja snúningsafl frá sveifarás að ýmsum hjálparbúnaði. Þótt heitið viftureim sé enn almennt notað geta reimarnar meðal annars knúið rafal, vatnsdælu, loftkælingardælu og annan búnað, allt eftir uppbyggingu vélarinnar.
Í úrvalinu eru bæði hefðbundnar V-reimar og fjölrifareimar. Fjölrifareimar eru fáanlegar með mismunandi rifjafjölda og í fjölmörgum lengdum til að passa við ólíkar vélar og reimdrif.




