Meindýravarnir · Leiðbeiningar

Flugnabanar fyrir matvælavinnslu og atvinnurými

Flugur og önnur skordýr geta borið örverur og aðskotahluti inn á svæði þar sem matvæli eru framleidd, meðhöndluð eða geymd. Flugnabani getur verið hluti af árangursríkum meindýravörnum — en val, staðsetning og viðhald þurfa alltaf að miðast við mengunarhættu.

Fluga á flugi við UV-flugnabana í atvinnurými
Nr. 103/2010Reglugerðin sem gerir kröfu um varnir gegn skaðvöldum
Tvær gerðirLímspjald eða rafstuð — mengunarhættan ræður valinu
4–5 vikurViðmið framleiðanda fyrir skipti á límspjaldi
Skjalfest verklagÞað sem eftirlitsaðili biður um að sjá

Meginatriðið

Hvað á að velja þegar kemur að flugnabönum

Reglur gera kröfu um fullnægjandi varnir gegn skaðvöldum, en mæla ekki almennt fyrir um eina tiltekna gerð flugnabana. Fyrirtækið ber ábyrgð á áhættumati, skjalfestu verklagi og reglubundnu eftirliti.

Þetta þýðir tvennt í reynd. Enginn söluaðili getur sagt þér að tiltekið tæki sé „löglegt“ eitt og sér, og enginn búnaður bætir upp fyrir opna hurð, óþétt niðurfall eða rusl við vörumóttöku.

Lagagrundvöllur og leiðbeiningar

HeimildHvað felst í henni
Reglugerð nr. 103/2010 og reglugerð (EB) nr. 852/2004Viðauki II fjallar m.a. um varnir gegn skaðvöldum, hönnun húsnæðis, úrgang og vernd matvæla gegn mengun.
MAST: Eftirlitshandbók heilbrigðiseftirlits sveitarfélagaKafli 10.52.2 um meindýravarnir: skilgreint verklag, yfirlitsmyndir, eftirlitstíðni, skráning og úrbætur.
MAST: Góðir starfshættir fyrir matvælafyrirtækiKafli 2.4 um meindýr: forvarnir, vöktun og reglubundið eftirlit með gildrum og flugnabönum.

Þriggja síðna yfirlit Kemi | Poulsen um kröfur, val á búnaði, uppsetningu, eftirlit og skráningar. Fullar tilvísanir, kaflanúmer og fyrirvari eru neðst á síðunni.

Val á búnaði

Límspjald eða rafstuð?

Munurinn snýst ekki um hversu margar flugur tækið nær, heldur um hvað verður um þær eftir það. Í matvælarými er sú spurning aðalatriðið.

Límspjaldsgildra

  • UV-ljós laðar skordýrin að og þau festast á límspjaldi inni í tækinu.
  • Ekkert þeytist út í rýmið, svo tækið má vera nær vinnslu en rafstuðsbani.
  • Spjaldið er líka sýnishorn: þú sérð hvað veiddist og getur talið það í eftirliti.
  • Skipta þarf um spjald reglulega, að jafnaði á fjögurra til fimm vikna fresti.

Rafstuðsgildra

  • Skordýrin drepast við snertingu við rafmagnsgrind og falla í safnbakka.
  • Skordýr eða hlutar þeirra geta dreifst út frá búnaðinum.
  • Meta þarf sérstaklega hættu á mengun matvæla, umbúða og snertiflata.
  • Hentar þar sem fjarlægð frá vinnslu er næg: vörumóttaka, gangar, geymslur.

Aðalreglan. Hvorki límspjalds- né rafstuðsbani á að vera yfir óvörðum matvælum eða þar sem skordýr eða aðskotahlutir geta fallið í vöru. Þar sem vafi leikur á velur þú límspjald.

Ráðleggingar um gerð og staðsetningu búnaðar byggja á áhættumati. Þær eru ekki sjálfstæð tækniforskrift í reglugerð nr. 103/2010.

Eftir rými

Hvaða gerð á hvaða stað

Flest matvælafyrirtæki þurfa fleiri en eitt tæki og ekki endilega sömu gerðina alls staðar. Þetta er útgangspunktur fyrir yfirlitsmyndina; endanlegt val ræðst af þínu áhættumati.

Vinnslusalur með opnum matvælum

Ekkert má dreifast út frá búnaðinum. Þrífanlegt yfirborð og gott aðgengi að spjaldi.

Hentar: límspjaldsgildra, utan við vinnslulínuna sjálfa.

Rök og rykug rými, úðaþrif

Rafbúnaður og lampar þurfa að þola vatn og gufu.

Hentar: límspjaldsgildra með IP-vörn.

Atvinnueldhús og framreiðsla

Hljóðlát virkni og spjald sem gestir sjá ekki.

Hentar: hulin límspjaldsgildra.

Vörumóttaka, gangar og geymslur

Að stöðva flugur áður en þær komast lengra inn í húsnæðið.

Hentar: límspjald eða rafstuð, eftir fjarlægð frá vinnslu.

Verslun og afgreiðslusvæði

Útlit, hljóð og að enginn sjái aflann.

Hentar: nett eða hringlaga límspjaldsgildra.

Stórir salir og hátt til lofts

Að UV-ljósið sjáist úr fleiri áttum og nái lengra út í rýmið.

Hentar: stærri gildra, upphengd í loft.

Stafræn vöktun. Sumar gerðir fylgjast með límspjaldinu með myndavél og senda stöðu, viðvaranir og skýrslur í vefgátt eða app. Það kemur ekki í stað skoðunar á staðnum, en það gefur dagsetta skráningu milli heimsókna og lætur vita þegar afli eykst.

Uppsetning

Rétt staðsetning og forvarnir

Flugnabani á ekki að koma í stað góðra forvarna. Byrjið á að takmarka aðgang skordýra og veljið síðan staði fyrir búnað þar sem hann nýtist án þess að skapa nýja mengunarhættu.

Staðsetning flugnabana

  1. Haldið fjarlægð frá matvælum. Setjið ekki búnað beint yfir opnar vinnslulínur, óvarin hráefni, tilbúnar vörur, matvælasnertifleti eða opnar umbúðir.
  2. Metið aðstæður í rýminu. Takið mið af inngöngum, flugleiðum, ljósum, loftstreymi og þrifaaðgengi. Ekki staðsetja búnað þannig að hann laði flugur inn að matvælum.
  3. Tryggið aðgengi fyrir viðhald. Auðvelt á að vera að skoða, þrífa og endurnýja ljósgjafa eða límspjöld án þess að menga vinnslusvæði.
  4. Skráið staðsetningu. Merkið hvern flugnabana með auðkenni og sýnið hann á uppfærðri yfirlitsmynd af húsnæði.

Hæðin og birtan. Framleiðendur miða við um tveggja metra hæð eða lægra, því flugur fljúga lágt. Veljið stað þar sem UV-ljósið sést vel en keppir ekki við glugga, þakglugga eða aðra sterka ljósgjafa, og látið tækið ganga allan sólarhringinn.

Aðrar mikilvægar forvarnir

  • Haldið hurðum og opnanlegum gluggum lokuðum þegar því verður við komið; notið þétt skordýranet þar sem þörf er á.
  • Haldið loftræstiopum, niðurföllum, úrgangssvæðum og næsta umhverfi hreinu og vel frágengnu.
  • Fjarlægið rusl, standandi vatn og annað sem getur laðað að sér skordýr eða skapað þeim afdrep.

Eftirlit

Reglubundið eftirlit og viðhald

Eftirlitstíðni á að vera skilgreind í verklagi fyrirtækisins og taka mið af áhættu, árstíma og niðurstöðum fyrra eftirlits.

EftirlitsatriðiRáðlögð framkvæmd
Virkni og hreinlætiSkoðið afla, ástand búnaðar og hvort skordýr eða óhreinindi geti fallið í matvæli.
Límspjöld og söfnunarbakkarEndurnýið eða tæmið með tíðni sem hæfir álagi og fyrirmælum framleiðanda; skráið framkvæmd.
LjósgjafarEftirlitshandbók MAST tilgreinir a.m.k. árleg peruskipti. Fylgið jafnframt leiðbeiningum framleiðanda og metið sérlausnir á borð við LED.
Frávik og úrbæturSkráið fjölgun skordýra, bilanir, breytingar á staðsetningu og úrbætur sem gripið er til.

Perur og LED. Ársviðmið eftirlitshandbókarinnar er skrifað út frá UV-flúrrörum, sem missa útgeislun löngu áður en þau slokkna. LED-ljósgjafar nýrri tækja hafa þriggja ára viðmiðunartíma frá framleiðanda. Veldu viðmiðið í áhættumatinu, skráðu skiptin og vertu viðbúin að rökstyðja frávik frá ársviðmiðinu.

Þegar þörf er á sérstakri meindýraeyðingu

Í eftirlitshandbók MAST er tekið fram að eitur sé ekki leyfilegt innandyra. Sé beitt efnavörnum utan húsnæðis þarf að fylgja viðeigandi kröfum og tryggja að sérhæfður meindýraeyðir hafi tilskilin leyfi. Allar aðgerðir skulu vera hluti af skjalfestu verklagi og ekki skapa hættu fyrir matvæli.

Skjalfesting

Skjalfest meindýravörn

Skýr skjöl og rekjanlegar skráningar auðvelda að sýna fram á að meindýravarnir séu virkar og að brugðist sé við frávikum.

Hvað á verklag að taka til?

AtriðiDæmi um upplýsingar
ForvarnirHvernig inngöngum skordýra er varnað og hvernig umhverfi er haldið lausu við afdrep.
Yfirlitsmynd og búnaðurAuðkenni og staðsetning flugnabana, gerð þeirra og tæknigögn, t.d. áætluð þekja í m² samkvæmt framleiðanda.
Vöktun og ábyrgðHver skoðar búnað, hversu oft og hvað er skráð um afla, virkni, þrif og skiptanlega hluti.
Viðmiðunarmörk og viðbrögðHvaða niðurstöður kalla á aðgerðir, hvernig orsaka er leitað og hvernig úrbætur eru sannreyndar.
SkráningarDagsetning, staðsetning, niðurstaða, framkvæmd aðgerð, ábyrgðaraðili og staðfesting á eftirfylgni.

Ef vart verður við aukinn fjölda skordýra

  1. Skoðið mögulega mengun. Metið hvort matvæli, umbúðir eða snertifletir hafi mengast og takið viðeigandi ráðstafanir.
  2. Finnið upptökin. Athugið hurðir, glugga, net, úrgang, niðurföll, vörumóttöku og möguleg afdrep.
  3. Leiðréttið og skráið. Bætið forvarnir, þjónustið búnað eða óskið sérfræðiaðstoðar eftir þörfum.
  4. Sannprófið árangur. Fylgist með þróun afla og skráið niðurstöðu eftir úrbætur.

Rekstrarvörur

Límspjöld og ljósgjafar

Flugnabani virkar aðeins meðan spjaldið er ferskt og ljósgjafinn gefur fulla UV-útgeislun. Notaðu alltaf límspjöld og lampa sem framleiðandi tilgreinir fyrir tækið — aðrar gerðir geta fellt ábyrgðina úr gildi og veiðin verður verri.

Algengar spurningar

Má setja flugnabana yfir vinnsluborð?

Nei. Hvorki límspjalds- né rafstuðsbani á að vera beint yfir óvörðum matvælum, matvælasnertiflötum, opnum umbúðum eða vöskum.

Settu hann til hliðar við vinnslusvæðið, í um tveggja metra hæð eða lægra. Flugur fljúga lágt og gildran á að vera í þeirra hæð.

Er rafstuðsbani bannaður í matvælavinnslu?

Reglur banna ekki tiltekna gerð af flugnabana. Rafstuðsbúnaður getur hins vegar valdið því að skordýr eða hlutar þeirra dreifist út frá tækinu, og þá hættu þarf að meta sérstaklega gagnvart matvælum, umbúðum og snertiflötum.

Þar sem sú hætta er til staðar er límspjaldsgildra einfaldara val, því aflinn helst inni í tækinu. Rafstuð á betur heima fjær vinnslunni, til dæmis í vörumóttöku eða geymslu.

Hversu oft þarf að skipta um límspjald?

Viðmið framleiðanda er fjórar til fimm vikur, og fyrr ef spjaldið fyllist eða límflöturinn verður rykugur.

Skráðu hverja skiptingu. Tíðnin á að vera skilgreind í verklagi fyrirtækisins og taka mið af álagi, árstíma og niðurstöðum fyrra eftirlits.

Þarf að skipta um perur árlega þótt tækið sé með LED?

Eftirlitshandbók MAST tilgreinir að skipta þurfi um perur í flugnabönum a.m.k. árlega. Það viðmið á við UV-flúrrör, sem missa útgeislun löngu áður en þau slokkna.

Samantektin tekur jafnframt fram að fylgja beri leiðbeiningum framleiðanda og meta sérlausnir á borð við LED; framleiðandi LED-gerðanna gefur upp þriggja ára viðmiðunartíma. Veldu viðmiðið í áhættumatinu þínu, skráðu skiptin og vertu viðbúin að rökstyðja frávik frá ársviðmiðinu fyrir eftirlitsaðila.

Hvað þarf eftirlitsaðili að geta séð?

Skilgreint verklag, yfirlitsmynd með auðkenndum tækjum, eftirlitstíðni og skráningar um afla, þrif og skiptanlega hluti.

Þegar frávik koma upp þarf líka að sjást hvað var gert, hver bar ábyrgð á því og hvernig árangurinn var sannreyndur.

Dugar flugnabani einn og sér?

Nei. Ljósgildra er einn hluti af meindýravörnum. Góð þrif, lokaðar aðkomuleiðir, skordýranet í gluggum og frágangur á úrgangi vinna með tækinu.

Búnaður bætir ekki upp fyrir opna hurð, óþétt niðurfall eða rusl við vörumóttöku.

Hvaða stærð af tæki þarf ég?

Veldu út frá stærð rýmisins, lofthæð og því hversu langt UV-ljósið þarf að ná. Framleiðandi gefur upp viðmiðunarsvæði í m² fyrir hverja gerð og það er talan sem á að rata í yfirlitsmyndina þína.

Í stórum sölum er upphenging í loft oft betri en veggfesting, því þá sést ljósið úr fleiri áttum. Hringdu í okkur ef þú vilt fara yfir teikninguna.

Heimildir og fyrirvari

  1. Reglugerð nr. 103/2010 um gildistöku reglugerðar (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli, með síðari breytingum. Sjá viðauka II, I. kafla, 2. lið c; II. kafla, 1. lið d; VI. kafla, 3. lið; IX. kafla, 4. lið.
  2. Matvælastofnun (MAST), Eftirlitshandbók heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga (PDF), 2. útgáfa, ágúst 2021, kafli 10.52.2: Meindýravarnir (bls. 52).
  3. Matvælastofnun (MAST), Góðir starfshættir fyrir matvælafyrirtæki (PDF), útgáfa 1.0, janúar 2011, kafli 2.4: Meindýr (bls. 10).

Þetta er upplýsingasamantekt Kemi sem byggir á tilgreindum reglugerðum og útgefnum leiðbeiningum MAST. Hún kemur ekki í stað áhættumats fyrirtækis, leiðbeininga framleiðanda eða fyrirmæla viðkomandi eftirlitsaðila. MAST hefur ekki yfirfarið eða samþykkt þessa samantekt.

Þarftu hjálp við að velja og staðsetja?

Sendu okkur grunnmynd af húsnæðinu eða lýsingu á rýmunum og við förum yfir hvaða gerðir og stærðir eiga við hvar, hvað þarf af rekstrarvörum og hvernig yfirlitsmyndin lítur út.

Síminn: 415 4000 · Hafa samband