FPPF Chemical er bandarískt fyrirtæki sem hefur frá árinu 1975 sérhæft sig í framleiðslu eldsneytisbætiefna og tengdra vara. Fyrirtækið var stofnað í Buffalo, New York, með það markmið að bæta gæði eldsneytis, lengja endingu véla og draga úr rekstrarkostnaði. Vörurnar frá FPPF hafa áratuga reynslu að baki og eru notaðar af atvinnubílum, skipum, landbúnaðarvélum, rafstöðvum, flugvöllum og mörgum fleiri aðilum sem treysta á áreiðanlegt eldsneyti og örugga virkni véla.
Í dag er FPPF viðurkennt sem leiðandi fyrirtæki á sínu sviði og leggur mikla áherslu á rannsóknir og þróun. Með því tryggir fyrirtækið að bætiefnin mæti síbreytilegum kröfum markaðarins og samræmist strangasta umhverfis- og öryggisregluverki.
Vörulína FPPF
Vörur FPPF má skipta í nokkra flokka, allt frá árlegri meðferð eldsneytis til sérhæfðra lausna fyrir kulda, bakteríuvandamál eða innspýtingarkerfi. Hér er yfirlit yfir helstu vörur og notkun þeirra:
Fuel Power
Eldsneytisaukefni sem hefur verið burðarás vörulínunnar frá upphafi. Það meðhöndlar vatn í eldsneyti, stöðvar oxun, hindrar slímmyndun, heldur eldsneyti fersku og eykur brennslugæði. Fuel Power er alkohólslaust og skaðar því ekki pakkningar eða þétti.
Total Power
Samsett lausn sem sameinar virkni margra annarra bætiefna í einni vöru. Hún eykur cetan tölu, bætir smurningu, stöðgar eldsneyti, lækkar kuldapunkt og verndar gegn oxun og tæringu. Total Power hentar sérstaklega þeim sem vilja hafa eina heildarlausn fyrir allt árið.
Lubricity Plus Fuel Power
Samanstanda af Fuel Power með auknum smureiginleikum, hannað sérstaklega fyrir dísileldsneyti með lága brennisteinsinnihald. Verndar innspýtingardælur og sprautur gegn sliti.
8+ Cetane Improver
Eykur cetan tölu eldsneytis um allt að 8 stig. Þetta bætir upptöku, tryggir betri start í kulda, eykur afköst og dregur úr svörtum reyk.
KILLEM
Skráð bakteríu- og sveppaeyðir sem fjarlægir lífverur úr eldsneytiskerfum. KILLEM kemur í veg fyrir slímmyndanir sem geta stíflað síur og valdið dýrum skemmdum. Notað sérstaklega að vori og hausti eða þegar grunur leikur á bakteríuvandamálum í tönkum.
Polar Power
Hannað fyrir kaldar aðstæður. Polar Power lækkar kuldapunkt eldsneytis, kemur í veg fyrir kristöllun og tryggir að eldsneytið flæði í frosthörkum.
Diesel Injector Cleaner
Hreinsiefni fyrir dísilinnspýtingarkerfi. Það leysir upp útfellingar, hreinsar sprautur og bætir bruna. Regluleg notkun dregur úr sótmengun, bætir eldsneytisnýtingu og lengir líftíma DPF síu.
Fleet Formula
Sérhannað fyrir stór eldsneytigeymslukerfi, flutningatanka og atvinnurekstur. Dreifir vatni, verndar gegn frystingu, hreinsar tank og tryggir stöðugleika eldsneytis við geymslu.
SBG – Sludge Be Gone
Notað til að losa um slím og óhreinindi í eldsneytiskerfum. Brýtur niður útfellingar og losar þær upp þannig að þær brenni með eldsneyti án þess að stífla kerfið.
Ávinningur fyrir íslenska notendur
Við íslenskar aðstæður þar sem frost, raki og geymsla eldsneytis eru helstu áskoranir, er sérstaklega mikilvægt að velja réttu lausnina:
- Fuel Power og Total Power tryggja árangursríka grunnmeðferð allt árið.
- Polar Power verndar gegn frostskemmdum.
- KILLEM heldur bakteríum í skefjum.
- Diesel Injector Cleaner heldur innspýtingu hreinni og bætir nýtingu.
Með réttri notkun dregur úr bilanatíðni, viðhaldskostnaði og eldsneytiseyðslu.


