Mega-Lab

Mildex-Q myglueyðandi hreinsiefni m/klór

Vörunúmer 500-5510012
Verð
3.950 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Mildex-Q er hraðvirkt, öflugt myglueyðandi efni sem inniheldur klór. Mildex-Q er auðvelt í notkun til eyðingar á myglu og sveppagróðri. Hentar til þrifa á sturtubotnum, sturtuhengjum, fúgu í votrýmum, yfirbreiðslum tjaldvagna o.fl. tækja, vínyl efnum, gúmmiköntum á kæliklefum og ísskápum, pakkningar, plast- og timburhúsgögn, steypu, múrstein og á alla aðra staði sem þú gætir fengið myglu / myglubletti á.

ATHUGIÐ! ef Mildex-Q er notað á tauefni svo sem tjöld, tjaldvagna og fellihýsi til að mygluhreinsa þá mælum við ávallt með að prófa Mildex-Q á lítt sjáanlegum stað á taufeninu til að sjá hvernig það bregst við og hvort það upplitast. Tjöld eru yfirleitt gríðarlega litföst og meðal sterkustu tauefna sem notuð eru en það borgar sig að prófa fyrst. (Úðadæla fylgir ekki með brúsanum hægt að kaupa hana sérstaklega sjá neðar á síðunni)

Fylgiskjöl3 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer500-5510012 Strikamerki5694230023660 Flokkar, , Stikkorð, , , Vörumerki

ATH! Úðadæla fylgir ekki með brúsanum smelltu á viðeigandi hnapp í texta til að kaupa aukalega ef að þú þarft.

Vörulýsing

Mildex-Q myglueyðir – myglueyðandi hreinsiefni

Mildex-Q er hraðvirkt og öflugt sérhannað myglueyðandi hreinsiefni sem inniheldur klór. Mildex-Q er auðvelt í notkun til eyðingar á myglu og sveppagróðri. Hentar til þrifa á sturtubotnum, sturtuhengjum, fúgu í votrýmum, tjaldvagnaseglum, vínyl efnum, gúmmiköntum á kæliklefum og ísskápum, pakkningar, plast- og timburhúsgögn, steypu, múrstein og á alla aðra staði sem þú gætir fengið myglu / myglubletti á.

Athugið að Mildex-Q má ekki nota á bómull og fleiri tauefni þar sem að í því er klór og það getur upplitað tauefnið.

Helstu eiginleikar

  • Mjög öflug áhrif gegn myglu, sveppagróðri og bakteríum
  • Hentar á flestar gerðir efnis (timbur, múr, málningu, plast, flísar o.fl.)
  • Einfalt í notkun, úða Mildex-Q á flötinn, bíða í 10 mínútur og þurrka, má einnig láta standa

Notkunarsvið

  • Heimili (baðherbergi, gluggar, þvottahús, geymslur, þvottahús)
  • Bifreiðar og húsbílar (rúður, þéttingar, loft)
  • Atvinnuhúsnæði og iðnaðarrými
  • Tjaldbúnað, fellihýsi, tjaldbvagnar o.fl.

Notkunarleiðbeiningar:

Ef að myglan er orðin þykk eða mikið af henni þá borgar sig að reyna að hreinsa sem mest af henni í burtu áður en meðhöndlun með efnum fer fram. Það borgar sig ávallt að vera í viðeigandi hlífðarfatnaði með öfluga grímu yfir nef og munn ásamt því að vera með lokuð gleraugu. Mygla getur verið talsvert heisluspillandi og hún kemst næst þér við innöndun og við augun.

Úðið Mildex-Q yfir svæðið sem þrífa á og látið efnið standa í 5 mínútur, gott er að þrífa flötinn eftir á með hreinni rakri tusku, ef að myglan er orðin svört þá getur svarti liturinn á myglunni verið áfram til staðar eftir notkun þó svo að myglan drepist, þó fer það eftir því á hverju myglan situr lökkuðu yfirborð eða grófu o.s.fr..

Steinn/steypa (veggir og gólf): úðið yfir flötinn og látið standa í 5 mínútur, ekki er þörf á að þrífa steypu eftir notkun.

Timbur: Timbur er oft á tíðum mjög gljúpt efni, nauðsynlegt er að bleyta vel í timbrinu með Mildex-Q og láta það bara standa og þorna.

Tjöld og tjaldvagnar: Þegar Mildex-Q er notað til að hreinsa tjaldvagna og tjöld þá borgar sig alltaf að nota það á lítt sjáanlega staði til að byrja með þar sem það getur upplitað, slík tjöld eru mjög litföst og höfum við ekki heyrt af því að þau hafi upplitast. ATHUGIÐ! Það verður að rakaverja tjaldbúnað eftir þrif með Mildex-Q.

Hér fyrir neðan má sjá úðadælu sem hægt er að setja á Mildex-Q brúsann. Það má einnig setja efnið í úðakút ef að þörf er á að úða á stóra fleti. (ATH! úðadælan fylgir ekki með brúsanum)

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 1,00 kg
Framleiðandi

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Úðakútur IK ALK fyrir alkalíska efnavöruIK - Goizper
Úðakútur IK ALK

IK ALK úðakútarnir eru efnaþolnir og þola flesta alkahólvökva s.s. bútanól, etanól, metanól o.fl. einnig henta þeir undir…

Sjá nánar
Meira frá
Mega-Lab
Skoða allt →
Tyggjóleysir - Frystisprey
Tyggjóleysir - Frystisprey

Tyggjóleysir (Chewing Gum Remover) sérhæft hreinsiefni til að auðvelda það að fjarlægja tyggjóklessur. Djúpfrystir tyggjóklessurnar þannig að auðvelt…

Vnr: 7901-10
3.669 kr.
Setja í körfu
Stíflubaninn Drain B-Gon
Stíflubaninn Drain B-Gon

Stíflubaninn Drain B-Gon er mjög öflugur stíflubani / stíflueyðir í duftformi (appelsínugular litlar kúlur) sem að hentar vel…

Vnr: 994-316-9912
4.920 kr.
Setja í körfu
Meg-A-Loose ryðolía
Meg-A-Loose ryðolía

Mega-Lab Meg-A-Loose er öflugur ryðleysir og smurefni sem losar fasta bolta, rær, skrúfur og aðra vélræna hluti. Efnið…

Vnr: 994-702-0012
3.155 kr.
Setja í körfu