Trausti Hrausti er hraðvirkur og öflugur stífluleysir sem hentar í öll niðurföll. Leysir upp öll lífræn efni eins og vax, fitu og fleira. Trausti Hrausti stíflueyðirinn skemmir ekki lagnir, plast, gúmmi né pakkningar!
Áríðandi: Lesið alltaf leiðbeiningar fyrir notkun. Notist alls ekki með heitu vatni. Notist alls ekki með öðrum efnum.
Notkunarleiðbeiningar:
- Fjarlægið eins mikið af vatni úr vatnslás ef að það er á annað borð mögulegt áður en Trausti Hrausti er notaður.
- Haldið brúsanum frá ykkur þegar hellt er í niðurfallið (verið með andlitið frá niðurfallinu)
- Hellið efninu (150-300 ml) rólega í niðurfallið, varist að hella á króm eða önnur viðkvæm efni.
- Bíðið í c.a. 5 – 10 mínútur og forðist að anda að ykkur gufum sem kunna að myndast (gott að setja tappann í niðurfallið á meðan beðið er).
- Eftir notkun er best að skola með köldu vatni í 5 – 10 mínútur.
- Ef að um erfiðar stíflur er að ræða, endurtakið aðgerðina ef að þörf þykir.
ATHUGIÐ! Varist það að vera með andlitið ofan við niðurfallið (það á við um allar gerðir af stíflueyðum) á meðan verið er að hella í það og hreinsun er í gangi. Forðist alla snertingu við matvæli og svæði þar sem matvæli eru meðhöndluð og þrífið vel eftir meðferð.
Við notkun á stíflueyðum og öllum sterkum efnum þá bendum við á að það á alltaf að nota viðeigandi hlífðarfatnað við notkun þeirra s.s. gúmmíhanska, öryggisgleraugu og andlitsgrímu.