Mildex-Q er myglueyðandi hreinsiefni sem inniheldur klór (hefur einnig sótthreinsandi virkni). Mildex-Q er auðvelt í notkun til eyðingar á myglu og sveppagróðri. Hentar til þrifa á sturtubotnum, sturtuhengjum, fúgu í votrýmum, tjaldvagnaseglum, vínyl efnum, gúmmiköntum á kæliklefum og ísskápum, pakkningar, plast- og timburhúsgögn, steypu, múrstein og á alla aðra staði sem þú gætir fengið myglu / myglubletti á.
Mildex-Q hentar ekki til notkunar á bómull og fleiri tauefni þar sem að í Mildex-Q inniheldur klór og það getur upplitað tauefni.
ATHUGIÐ! ef Mildex-Q er notað á tauefni í tjöldum, tjaldvagna og fellihýsi til að bletta- og mygluhreinsa þá mælum við ávallt með að prófa Mildex-Q á lítt sjáanlegum stað á taufeninu til að sjá hvernig það bregst við og hvort það upplitast. Tjöld eru yfirleitt gríðarlega litföst og meðal sterkustu tauefna sem notuð eru en það borgar sig að prófa fyrst.
Notkunarleiðbeiningar
Til að byrja með þarf alltaf að komast að rót rakavandans og grófhreinsa svæðið mjög vel. Það getur þurft að fjarlæga byggingarefni s.s. múr eða timbur. Þegar búið er að komast í veg fyrir vandann þá fyrst er hægt að byrja hreinsun með Mildex-Q.
Það borgar sig ávallt að vera í viðeigandi hlífðarfatnaði með öfluga grímu sem nær yfir nef og munn ásamt því að vera með lokuð gleraugu.
Besta leiðin til að nota Mildex-Q er að úða því beint á svæðið sem á að meðhöndla.
Úðið Mildex-Q yfir svæðið sem þrífa á og látið efnið standa í 5-10 mínútur, gott er að þrífa flötinn eftir á með hreinni rakri tusku, ef að myglan er orðin svört þá getur svarti liturinn á myglunni verið áfram til staðar eftir notkun þó svo að myglan drepist, þó fer það eftir því á hverju myglan situr lökkuðu yfirborð eða grófu o.s.fr..
- Steinn/steypa (veggir og gólf): úðið yfir flötinn og látið standa í 5 mínútur, ekki er þörf á að þrífa steypu eftir notkun.
- Timbur: Timbur er oft á tíðum mjög gljúpt efni, nauðsynlegt er að bleyta vel í timbrinu með Mildex-Q og láta það bara standa og þorna.
- Tjöld og tjaldvagnar: Þegar Mildex-Q er notað til að hreinsa tjaldvagna og tjöld þá borgar sig alltaf að nota það á lítt sjáanlega staði til að byrja með þar sem það getur upplitað, slík tjöld eru mjög litföst og höfum við ekki heyrt af því að þau hafi upplitast. Það þarf einnig að hafa það í huga að þegar búið er að hreinsa með Mildex-Q þá þarf að rakaverja tjaldið aftur.
Ef að þú vilt úða beint úr brúsanum getur þú bætt við úðadælu sem skrúfast beint á brúsann smelltu á hnappinn hér til hliðar. Einnig eigum við til mjög öfluga og vandaða úðakúta sem henta mjög vel fyrir Mildex-Q sem og önnur hreinsiefni. Smelltu á viðeigandi hnapp hér að neðan til að skoða úrvalið.
.stk-a4237c0,.stk-a4237c0 .stk-button{width:100% !important}.stk-a4237c0{flex:1 0 var(–stk-button-group-flex-wrap,0) !important}.stk-a4237c0 .stk-button{background:#7a9c59 !important;border-radius:5px !important}.stk-a4237c0 .stk-button__inner-text{text-transform:uppercase !important}
.stk-fc2fb59,.stk-fc2fb59 .stk-button{width:100% !important}.stk-fc2fb59{flex:1 0 var(–stk-button-group-flex-wrap,0) !important}.stk-fc2fb59 .stk-button{background:#7a9c59 !important;border-radius:5px !important}.stk-fc2fb59 .stk-button__inner-text{text-transform:uppercase !important}
.stk-92ed98c hr.stk-block-divider__hr{background:#000000 !important;height:2px !important;width:100% !important}
Stærri raka- og mygluvandamál
Ef að vandamálið sem þú ert að berjast við er umfangsmikið og stórt og bendum við þér á að leita ALLTAF til fagmanna. Það eru mjög góðar upplýsingar um “Áhrif raka og myglu á heilsu manna” á vefsíðu EFLU verkfræðistofu sem og á vefsíðu Umhverfisstofnunar og Mannvirkjastofu.
Hvað er mygla?
Mygla er agnarsmár sveppur, sveppurinn myndar gró sem svífa um í loftinu. Mygla kemur yfirleitt þar sem raki er og þrífst best í röku umhverfi. Vöxtur myglu er háður fjórum þáttum: æti, lofti, viðunnandi hitastigi og vatni.