Virkon S sótthreinsiefni (duft)
Virkon S er afar öflugt breiðvirkt veirueyðandi sótthreinsiefni í duftformi, efnið er með víðtæka virkni. Áhrifaríkt á hrufótt yfirborð, kalkríkt vatn, við lágan hita og á erfið lífræn óhreinindi. Kjörið fyrir gripahús, yfirborð, tækjabúnað, vatnskerfi og sótthreinsun á loftrýmum. Virkon S er einnig kjörið til að nota í sótthreinsandi skóbað eða sótthreinsandi meðferð á skófatnaði og í sótthreinsimottur.
Fylgiskjöl7 skjöl
Öryggisblað
Vottorð
Virkon S - Sótthreinsun í kringum hesta
Vörulýsing
Virkon S Sótthreinsiefni
afar öflugt breiðvirkt veirueyðandi sótthreinsiefni í duftformi, efnið er með víðtæka virkni. Áhrifaríkt á hrufótt yfirborð, kalkríkt vatn, við lágan hita og á erfið lífræn óhreinindi. Virkon S er kjörið fyrir hesthús sem og öll önnur gripahús, yfirborð, tækjabúnað, vatnskerfi og sótthreinsun á loftrýmum. Virkon S er mikið notað af hestamönnum og konum til þess að sótthreinsa allan búnað sem notaður er í hestamennsku.
Virkon S er einnig kjörið til að nota í sótthreinsandi skóbað eða sótthreinsandi meðferð á skófatnaði og í sótthreinsimottur.
Virkon S er alhliða sótthreinsiefni með víðtæka virkni og fjölbreytt notkunarsvið. Innihaldsefni þess er kalíumvetnissúlfat (oxandi efni), súlfamínsýra, efni til að halda sýrustigi réttu, yfirborðsvirk efni, ólífræn sölt, ilm- og litarefni. Samverkandi áhrif innihaldsefna Virkon S tryggja einstakan áhrifamátt og efnafræðilegan stöðugleika efnisins og skýra þol þess gagnvart lífrænum óhreinindum auk þess sem efnið fer betur með áhöld og tæki en önnur oxandi sótthreinsiefni.
NOTKUN SÓTTHREINSIEFNA
- Notið sótthreinsiefni á ábyrgan hátt.
- Lesið allar leiðbeiningarnar vandlega fyrir notkun.
- Geymist vel lokað á svölum, þurrum stað.
- Lokið alltaf vel eftir notkun.
- Hreinsið fötuna vel með vatni eftir notkun og fargið á viðeigandi hátt (duftafgöngum og umbúðum skal komið til spilliefnamóttöku til eyðingar).
- Komið í veg fyrir að vökvi eða vökvablanda lendi í niðurföllum eða vatnsrásum.
- Blandið ekki við önnur efni en þau sem framleiðandi mælir með.
- Áður en borið er á málmyfirborð skal hreinsa yfirborðið með hreinu vatni.
- Hreinsið vel tuskur eða annað sem notað er til að bera lausnina á eftir notkun.
- Óvarðir einstaklingar skulu ekki fara inn í rými sem verið er að sótthreinsa fyrr en allur úði hefur örugglega verið leystur upp.
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].
Meira fráLanxessSkoða allt →

Rely+On™ Virkon™ er breiðvirkt víruseyðandi sótthreinsiefni, einstök formúla. Virkar vel á fjölmargar sjúkdómsvaldandi lífverur. Til notkunar á heilbrigðisstofnunum,…
Sjá nánar














