Interflon Grease MP 2/3 er fjölnota matvælavottuð koppafeiti / smurfeiti sem að inniheldur MicPol®. Smurfeitin er með gríðarlega góða viðloðun, smureiginleika og inniheldur tæringar- og slitvörn. Interflon Grease MP 2/3 hentar fyrir kúlu- keflalegur sem snúast á lágum, miðlungs og miklum hraða. Einnig hentar hún fyrir liði, spindla, öxla, gíra, stýringar, kransa og margt fleira.
Interflon Grease MP 2/3 er með matvælavottun: NSF H2 með skráningarnúmerið 144639
Mælt er með að fyrri smurefni séu þvegin eða hreinsuð af öllum hlutum áður en notkun hefst, svo virknin sé með besta móti.





