Heskins Safety-Grip™ hálkuborðarnir voru upphaflega hugsaðir til notkunar í ýmsum iðnaði en henta að sjálfsögðu mjog víða. Hálkuvarnir eru margvíslegar, allt frá því að vera einþátta eða tveggja þátta efni sem og límdir borðar. Hálkuvarnir er nauðsynlegur öryggisbúnaður á mjög mörgum vinnustöðum af öryggis- og heilsufarsástæðum. Hálka og eða hál slykja getur myndast á gólfflötum við ýmiskonar aðstæður s.s. bleytu, frost, ryk og gróf óhreinindi og margt fleira sem er í umhverfi okkar. Heskins framleiðir margar gerðir af öryggis og hálkuborðum í mismunandi grófleika, einnig ýmiskonar merkingar (liti og skilti) á gólf og ganga í vöruhús og lagerhúsnæði. Allar vörur Heskins standast ítrustu kröfur og henta í öllum aðstæðum hvort sem er í atvinnulífinu eða á heimilinu.
Stærðir
Hægt er að fá Heskins Safety-Grip™ hálkuborðana í ýmsum breiddum allt fá 19mm upp í 1168mm. Breiddir frá 10mm og upp í 18mm er hægt að sérpanta en þær stærðir þarf alltaf að taka í lágmarksmagni. Stærðir sem liggja á lager eru eftirfarandi: 25mm, 50mm, 75mm, 100mm og 150mm. Allar breiddir koma á rúllum með samtals 18.3 lengdarmetrum.
- Lengdir: Það eru 18,3 metrar af hálkuborða á rúllu
- Breidd (staðlaðar breiddir á lager): 25 mm, 50 mm, 75 mm, 100 mm og 150 mm (það er hægt að fá hálkuborðana breiðari í sérpöntun)
- Grófleiki: Hægt er að fá hálkuborðana í Standard grófleika (minnsti grófleiki), Grófa og Extra grófa.
- Litamöguleikar: Svartur, Rauður, Gulur, Blár, Grænn, Grár, Brúnn, Hvítur, Glær, Flúr-gulur, Svartur/Gulur (Hazard), Rauður/Hvítur (Varúðar), Appelsínugulur.
Litir og stærðir
- Athugið, ekki eru allir litir eða stærðir lagervara, stærðirnar á Safety-Grip hálkuborðunum ná frá 19mm upp í 1168mm. Sumir litir og stærðir eru eingöngu teknar inn með sérpöntun, hægt er að fá rúllurnar skornar eins og hentar frá 19mm upp í 1168mm, hafðu samband til að nálgast upplýsingar um verð og afhendingartíma.
Hvað tekur sérpöntun langan tíma?
- Venjuleg sending er yfirleitt að taka 10-15 virka daga.
- Hraðsending með TNT og DHL tekur 2-6 virka daga.
ATHUGIÐ! það bætist við aukalegur kostnaður vegna hraðsendingar.
Hvaða grófleika á ég að velja?

Standard – Minnsti grófleiki

Coarse – Miðlungs grófleiki

Extra Coarse – Mesti grófleiki
Standard grófleiki er yfirleitt nægjanlegur innandyra, hvort sem um er að ræða stiga eða gólffleti. Grófur og Xtra-grófur henta mjög vel þar sem mikil óhreinindi (sandur, möl, leðja, snjór, vatn) geta safnast fyrir í borðanum, þessar aðstæður skapast á vinnusvæðum, stigbrettum á vinnuvélum og tækjum, stálstigum og þrepum, gólfflötum svo eitthvað sé nefnt. En þó svo að það safnist eitthvað fyrir í grófu hálkuborðunum þá er hann yfirleitt það grófur og gljúpur að hann veitir gott grip í þessum aðstæðum. Athugið að það getur þó fyllst vel í hann og þá þarf að hreinsa úr hálkuborðanum.
Hvernig á að leggja niður hálkuborða?
- Þegar hálkuborðar eru lagðir á grófa og gljúpa gólffleti s.s. timbur, steypur og þess háttar er gott að grunna með þar til gerðum grunni til að hann nái sem bestri límingu við flötinn.
- Borðarnir koma með lími á bakhlið, það er filma sem er tekin af þeim svipað og á límborðum almenn. Til þess að pressa hálkuborðann niður er notuð handrúlla og þeir rúllaðir og pressaðir niður.
- Ef að hálkuborðinn er á miklu umferðarsvæði og undir miklu áreiti er notaður “Edge Sealer” en það er límkennt efni sem borið er að kanntinn á borðanum svo hann flettist ekki upp.
- Það er mjög öflugt og sterkt lím á Heskins Safety-Grip™ hálkuborðunum og dugar í flestum tilfellum ef að undirlagið er mjög gott.
Á myndbandinu hér að neðan má sjá hvernig þetta er gert.