Hálkuborði Safety-Grip – Svartur / Gulur
Heskins Safety-Grip™ hálkuborðarnir eru notaðir víðsvegar í atvinnulífinu sem og á heimilum, sem dæmi má nefna: sturtubotnar, máluð gólf, flísar, stigaþrep (steypt, timbur eða stál), stigbretti á bifreiðum, ýmis konar stigpallar á vinnuvélum og tækjum og vinnupallar svo eitthvað sé nefnt. Það eru 18,3 metrar af hálkuborða á rúllunni.
Vörulýsing
Hægt er að fá Heskins Safety-Grip™ hálkuborðana í ýmsum breiddum allt fá 19mm upp í 1168mm. Breiddir frá 10mm og upp í 18mm er hægt að sérpanta en þær stærðir þarf alltaf að panta í lágmarksmagni. Stærðir sem liggja á lager hjá birgja eru eftirfarandi: 25mm, 50mm, 75mm, 100mm og 150mm. Allar breiddir koma á rúllum með samtals 18,3 lengdarmetrum.
- Lengdir: Það eru 18,3 metrar af hálkuborða á rúllu
- Breidd (staðlaðar breiddir á lager): 25 mm, 50 mm, 75 mm, 100 mm og 150 mm (það er hægt að fá hálkuborðana breiðari í sérpöntun)
- Grófleiki: Hægt er að fá hálkuborðana í “Standard” sem er minnsti grófleiki, “Grófa” og “Extra grófa” sem er mesti grófleiki.
- Litamöguleikar: Svartur, Rauður, Gulur, Blár, Grænn, Grár, Brúnn, Hvítur, Glær, Flúr-gulur, Svartur/Gulur (Hazard), Rauður/Hvítur (Varúðar), Appelsínugulur.
Athugið! ekki er hægt að fá allar gerðir grófleika í litum.
- Standard – Minnsti grófleiki: Allir litir fáanlegri sem taldir eru hér að ofan.
- Coarse – Miðlungs grófleiki: Svartur, Gulur, Grænn, Svartur/Gulur (Hazard).
- Extra Coarse – Mesti grófleiki: Svartur, Grænn.
Grófleikar hálkuborða (með svarfefni)?
Fást grófleikarnir í öllum litum?
Stutta svarið er nei! Það fást allir litir í Standard hálkuborðar: Allir litir og allar stærðir.
Athugið, ekki eru allir litir eða stærðir lagervara, stærðirnar á Safety-Grip hálkuborðunum ná frá 19mm upp í 1168mm. Sumir litir og stærðir eru eingöngu teknar inn með sérpöntun, hægt er að fá rúllurnar skornar eins og hentar frá 19mm upp í 1168mm, hafðu samband til að nálgast upplýsingar um verð og afhendingartíma.
Hvað tekur sérpöntun langan tíma?
- Venjuleg sending er yfirleitt að taka 10-15 virka daga.
- Hraðsending með TNT og DHL tekur 2-6 virka daga.
ATHUGIÐ! það bætist við aukalegur kostnaður vegna hraðsendingar.
Hvernig er best að leggja niður hálkuborða?
- Það þarf að passa að flöturinn sé hreinn og alveg laus við fitu, hægt er að fá ýmis efni til að þrífa undir límingu sem skilja ekki eftir neina filmu (efnaleifar) á fletinum eftir þrif.
- Ef að hálkuborðar eru lagðir á grófa og gljúpa gólffleti s.s. timbur, steypur og þess háttar er gott að grunna með þar til gerðum grunni til að hann nái sem bestri límingu við flötinn.
- Safety-Grip™ hálkuborðarnir koma með lími á bakhlið, það er filma sem er tekin af þeim svipað og á límborðum almennt.
- Hálkuborðinn er pressaður niður með handrúllu, rúllað fast yfir hann til að pressa hann sem best niður.
- Ef að hálkuborðinn er á miklu umferðarsvæði og undir miklu áreiti er notaður “Edge Sealer” en það er límkennt efni sem borið er að kanntinn á borðanum svo hann flettist ekki upp.
- Það er mjög öflugt og sterkt lím á Heskins Safety-Grip™ hálkuborðunum og dugar í flestum tilfellum ef að undirlagið er mjög gott.
Á myndbandinu hér að neðan má sjá hvernig þetta er gert.
Viðbótar upplýsingar
| Þyngd | Á ekki við |
|---|---|
| Framleiðandi | |
| Hálkuborði - breidd [mm] | 25, 50, 75 |
| Hálkuborði - grófleiki | Coarse – Grófkorna, Standard – Fínkorna |
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].
Meira fráHeskinsSkoða allt →

Heskins endurskinsborði ECE104 (H6632), ætlaður til merkinga á útlínum á afturhluta sem og á hlið vöruflutningabifreiða að eftirvagna…

Heskins Safety-Grip™ hálkuborðarnir eru notaðir víðsvegar í atvinnulífinu sem og á heimilum, sem dæmi má nefna: sturtubotnar, máluð…

PermaLean gólfborði frá Heskins fyrir gönguleiðir, vinnusvæði og geymslureiti. Slitsterkur, sjálflímandi borði í 30 m rúllum. Veldu 25…

Endurskinsborði með lími, hentar vel til að merkja hættuleg svæði sem og slár, útskot á vöruflutningabifreiðum og margt…

Heskins H3415 / H3450 og H3451 eru hálkuborðar sem eru án svarfefna (korna / sandpappírsáferð). H3415 Hálkuborðinn er…

Heskins Edge Fix Sealing Compund er efni sem að lokar kanntinum á hálkuborðunum. Edge Fix bindur kantinn á…

Heskins Surface Primer er sérstakur grunnur til að loka skellum og holum á gljúpu yfirborði sem að á…

Tapeline er gólfborði (gólftape) með lími á bakhlið, hentar mjög vel til afmerkingar og svæðaskiptingar á lagerum og…









