Hálkuborði Aqua-Safe – Svartur
Heskins Aqua-Safe eru hálkuborðar sem ætlaðir eru í blaut rými s.s. baðherbergi, sturtur, þvottahús, eldhús og á fleiri staði. Aqua-Safe hálkuborðarnir eru án korna (svarfefna) þannig að það er hægt að ganga á þeim á sokkum eða berum fótum án þess að það rífi eða rispi. Það er auðvelt að hreinsa Aqua-Safe hálkuborðana og það má einnig notast við léttar skúringavélar ef þörf þykir á því svæði sem borðarnir eru.
Fylgiskjöl1 skjal
Tæknilýsing
Vörulýsing
Heskins Aqua-Safe er sérhannaður hálkuvarnarborði sem veitir öruggt grip í stöðugt blautu umhverfi. Borðinn er þróaður fyrir svæði þar sem hefðbundin hálkuvörn með grófum kornum hentar ekki, svo sem í sundlaugum, sturtuklefum, bátum, matvælaiðnaði og öðrum rýmum þar sem gengið er berfætt eða í léttum skóbúnaði.
Aqua-Safe hálkuborðarnir eru án korna (svarfefna), yfirborð Aqua-Safe er með mjúkri, áferðarfallegri og vatnsþéttri húðun sem tryggir gott viðnám gegn hálku án þess að vera ertandi fyrir húð. Það gerir vöruna sérstaklega hentuga þar sem öryggi og þægindi þurfa að fara saman.
Helstu eiginleikar
• Sérstaklega hannaður fyrir blaut svæði
• Mjúkt og húðvænt yfirborð
• Vatnsþétt og endingargóð húðun
• Mikil mótstaða gegn sliti og efnaáhrifum
• Sterkt lím með háu viðloðunargildi
• Einföld og fljótleg uppsetning
Notkunarsvið
Heskins Aqua-Safe hentar meðal annars fyrir:
• Sundlaugar og heita potta
• Sturtur og búningsklefa
• Bátadek og bryggjur
• Matvælavinnslu og eldhús
• Heilsuræktarstöðvar og íþróttamannvirki
• Iðnaðar- og framleiðslurými með rakaálagi
Tæknilegar upplýsingar
| Eiginleiki | Lýsing |
|---|---|
| Yfirborð | Mjúk, vatnsþétt pólýúretan húðun |
| Undirlag | Sveigjanlegt PVC |
| Límbak | Háþétt akrýl lím |
| Þykkt | Um það bil 1 mm |
| Hitastig við uppsetningu | Lágmark +10°C |
| Hitastigsþol í notkun | Frá um það bil -20°C upp í +60°C |
| Viðnám gegn vatni | Fullkomlega vatnsþétt |
| Hálkuvörn | Hentar fyrir blaut og berfætt svæði |
Uppsetning
Undirlag skal vera hreint, þurrt og fitulaust áður en borðinn er lagður. Mælt er með að þrýsta borðanum vel niður við uppsetningu til að tryggja hámarks viðloðun. Fyrir krefjandi aðstæður er hægt að nota grunn eða kantaþéttingu til að auka endingu enn frekar.
Öryggi og ending
Aqua-Safe er hannaður til langtímanotkunar í umhverfi þar sem vatn, sápur og hreinsiefni eru daglegt álag. Slétt og lokað yfirborð auðveldar þrif og dregur úr uppsöfnun óhreininda. Varan styður við aukið rekstraröryggi og dregur úr hættu á slysum vegna hálku.
Heskins Aqua-Safe er áreiðanleg lausn þar sem hámarks grip, þægindi og ending skipta máli.
Almennt um stærðir og liti á Aqua-Safe
Hægt er að fá Heskins Aqua-Safe hálkuborðana í ýmsum breiddum allt fá 19mm upp í 1168mm. Breiddir frá 10mm og upp í 18mm er hægt að sérpanta en þær stærðir þarf alltaf að panta í lágmarksmagni. Stærðir sem liggja á lager hjá birgja eru eftirfarandi: 25mm, 50mm, 75mm, 100mm og 150mm. Allar breiddir koma á rúllum með samtals 18,3 lengdarmetrum.
- Lengdir: Það eru 18,3 metrar af hálkuborða á rúllu
- Breidd (staðlaðar breiddir á lager): 25 mm, 50 mm, 75 mm, 100 mm og 150 mm (það er hægt að fá hálkuborðana breiðari í sérpöntun)
- Grófleiki: Aqua-Safe fæst ekki í mismunandi grófleika.
- Litamöguleikar: Svartur, Grár, Hvítur, Beis og Glær.
Viðbótar upplýsingar
| Þyngd | Á ekki við |
|---|---|
| Framleiðandi | |
| Hálkuborði - grófleiki | Aqua-Safe vatnsþolinn (án korna) |
| Hálkuborði - litur | Svartur |
| Hálkuborði - lengd [mm] | 18.3m |
| Hálkuborði - breidd [mm] | 25, 50, 75, 100 |
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].
Meira fráHeskinsSkoða allt →

Heskins endurskinsborði ECE104 (H6632), ætlaður til merkinga á útlínum á afturhluta sem og á hlið vöruflutningabifreiða að eftirvagna…

Heskins Safety-Grip™ hálkuborðarnir eru notaðir víðsvegar í atvinnulífinu sem og á heimilum, sem dæmi má nefna: sturtubotnar, máluð…

PermaLean gólfborði frá Heskins fyrir gönguleiðir, vinnusvæði og geymslureiti. Slitsterkur, sjálflímandi borði í 30 m rúllum. Veldu 25…

Endurskinsborði með lími, hentar vel til að merkja hættuleg svæði sem og slár, útskot á vöruflutningabifreiðum og margt…

Heskins Safety-Grip™ hálkuborðarnir eru notaðir víðsvegar í atvinnulífinu sem og á heimilum, sem dæmi má nefna: sturtubotnar, máluð…

Heskins H3415 / H3450 og H3451 eru hálkuborðar sem eru án svarfefna (korna / sandpappírsáferð). H3415 Hálkuborðinn er…

Heskins Edge Fix Sealing Compund er efni sem að lokar kanntinum á hálkuborðunum. Edge Fix bindur kantinn á…

Heskins Surface Primer er sérstakur grunnur til að loka skellum og holum á gljúpu yfirborði sem að á…









