IK Foam eru kvoðu-úðakútar og henta undir ýmsar gerðir að kvoðusápum í almennum þrifum, bílaþrifum sem og þrifum í matvælaiðnaði o.fl.. IK Foam eru allir úr plasti og þola flestar sýrur og leysiefni.
Þú getur séð yfirlit yfir efnaþol IK úðakútanna í fylgiskjölum.
Meðferð úðakúta, til þess að úðakútar (óháð tegund) endist sem lengst er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga:
- Eftir hverja notkun skal tæma loft úr kútnum ásamt öllum vökva.
- Ef að stúturinn verður stíflaður, takið hann úr og hreinsið með vatni, ekki nota málmáhöld við losun stíflunnar.
- Ef að ekki er sérstakur lofttæmiventill, þá er einfaldast að snúa kútnum á hvolf og lofttæma með úðagikknum.
- Athugið! Aldrei skal skrúfa toppinn af úðakútinum með þrýstinginn á, oft er mikill loftþrýstingur á kútunum og getur slys hlotist af því.
- Skolið brúsan vel með heitu eða volgu vatni ásamt því að skola gúmmífóðringar og pakkningar, þannig lengist líftími til muna.
- Úðakúta skal geyma innadyra í þurru lofti og helst í hita, yfir vetrartímann (t.d. í upphituðum geymslum) því slöngur og fóðringar þorna upp og harðna ef að kútar eru geymdir í köldu umhverfi.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.