Heskins og 3M

Gólfmerkingar fyrir lagera og vöruhús

Gólfmerkingar fyrir lagera, vöruhús og framleiðslurými: merkingarborðar fyrir gólf, örvar og tákn sem afmarka gönguleiðir, akstursleiðir og geymslusvæði. Hér berum við saman fjórar línur af gólfborðum frá Heskins, 0,62 til 1,3 mm á þykkt. Þær eru lagðar á hreint og þurrt undirlag. Uppbygging, yfirborð og úrval útfærslna skilja línurnar að; rétt val ræðst líka af umferð, gólfi og þrifum. Fyrir léttari verk og tímabundnar merkingar eigum við líka tvo mun ódýrari borða.

Gular PermaStripe línur afmarka akstursleið milli vörubretta og hillna í vöruhúsi
4 línurPermaLean, PermaRoute, PermaStripe og Smooth
0,62–1,3 mmÞykktarbilið í línunum fjórum
7–10 virkir dagarFrá staðfestri pöntun til framleiðanda
1–3 árSkilyrt ábyrgð Heskins

Flestar Heskins-útfærslur eru sérpöntun

Gólfmerkingar og gólfborðar frá Heskins eru í langflestum tilfellum sérpöntun. Afhendingartími er 7–10 virkir dagar frá staðfestri pöntun til framleiðanda.

Valið

Hvaða lína á við?

Veldu út frá verkefninu: almenn afmörkun, krefjandi umferð, auðveldari þrif eða samræmt kerfi með prentun og táknum. Boxin fara beint á ítarlegar undirsíður með litum, formum, tæknigögnum og leiðbeiningum fyrir hverja línu.

PermaLean H6905

0,62 mm

Hagkvæm grunnlína fyrir almennar gólfmerkingar.

  • Þunn einsleit PVC-filma í heilum litum
  • Gönguleiðir, vinnusvæði og lagerreitir
  • Breitt úrval rúllubreidda í sérpöntun
  • 1 árs skilyrt ábyrgð framleiðanda

PermaStripe H6901

1,3 mm

Þykkur, mynstraður borði fyrir krefjandi iðnaðarumhverfi.

  • Gegnheilt PVC og skáskornar brúnir
  • Skýrar leiðir og svæðaskipting
  • Rúllur, horn, örvar og önnur form
  • 3 ára skilyrt ábyrgð framleiðanda

PermaStripe Smooth H6906

1,3 mm

Sléttur flötur þegar auðveldari þrif skipta máli.

  • Þykkt PVC með skáskornum brúnum
  • Engin upphleypt áferð til að þrífa á milli
  • Hálkuflokkun ekki gefin upp í gagnablaði
  • 3 ára skilyrt ábyrgð framleiðanda

PermaRoute H6903

0,96 mm

Lagskipt merkingakerfi fyrir línur, tákn og prentun.

  • Glær slitfilma ver lit og prentun
  • Samræmdar leiðir, mót og sérmerkt svæði
  • Rúllur, form og sérútfærslur eftir verkefni
  • 2 ára skilyrt ábyrgð framleiðanda

Er merkingin tímabundin eða umferðin létt? Þá er ekki víst að þú þurfir Perma-línu á annað borð. Við eigum líka tvo mun ódýrari borða sem duga í léttari verk.

Ertu ekki viss? Lýstu gólfinu og umferðinni fyrir okkur í síma 415 4000. Við förum yfir hvaða lína á við og hvað þarf af grunni og kantlímingu með.

Gólfið segir það sem skiltin ná ekki að segja

Gólfmerking svarar því sem enginn hefur tíma til að spyrja um: hvar má ganga, hvar má aka, hvar eiga brettin heima og hvar á enginn að standa. Á lager, í framleiðslusal og á verkstæði er gólfið sá flötur sem allir horfa á hvort sem þeir ætla sér það eða ekki.

Málning og epoxý gera sama gagn en loka svæðinu á meðan. Límborði er lagður á hreint gólf og svæðið er tekið í notkun um leið. Enginn þurrktími, engin leysiefnalykt og engin lokuð vinnslulína á meðan verkið stendur yfir.

Þegar skipulagið breytist, og það gerir það, er borðinn tekinn upp og nýr lagður í staðinn. Hann slitnar ekki í sundur þegar hann er fjarlægður. Málningu þarf að slípa eða mála yfir og gamla línan skín í gegn löngu á eftir.

Skemmdur kafli er líka staðbundið vandamál en ekki verk fyrir allan salinn: skerðu hann burt, hreinsaðu undirlagið og leggðu nýjan bút. Það tekur mínútur.

Blá PermaStripe lína afmarkar gönguleið meðfram vörubrettahillu þar sem starfsmaður gengur hjá

Línurnar fjórar hlið við hlið

Tölurnar koma úr gagnablöðum Heskins sjálfs, ekki af vörusíðunum. Þar sem reitur er auður mælir framleiðandinn þann eiginleika ekki á þeirri línu, og þá er betra að segja ekkert en að giska.

PermaLean H6905PermaRoute H6903PermaStripe H6901PermaStripe Smooth H6906
Heildarþykkt0,62 mm0,96 mm1,3 mm1,3 mm
UppbyggingEinsleit lituð PVC-filma, 0,5 mm0,15 mm grunnfilma + 0,55 mm glær slitfilma1 mm PVC, mynstrað yfirborð1 mm PVC, slétt yfirborð
Þykkt líms0,12 mm—0,2 mm0,2 mm
Viðloðun, FINAT FTM125,2 N/25 mm (20 mín.)—42,2 N/25 mm42,2 N/25 mm
Viðloðun við stál, PSTC-1—6,00 kg/25,4 mm——
Togstyrkur158 N/25 mm—>200 N/25 mm>200 N/25 mm
Hálkuviðnám, DIN 51130R10R10R10Ekki gefið upp
Pendúlpróf, þurrt / blautt102 / 24102 / 24——
Brunaprófun—Stenst EN 13501 / DIN 11925——
Notkunarhitabil−30 til +70 °C−30 til +70 °C−30 til +70 °C−30 til +70 °C
Lágmarkshiti við lögn10 °C10 °C10 °C10 °C
Rúllubreiddir15–1260 mmAllt að 1260 mm50, 75 og 100 mm50, 75 og 100 mm
Litir á gagnablaði1115159
Ábyrgð framleiðanda1 ár2 ár3 ár3 ár
Pöntun hjá KemiYfirleitt sérpöntunYfirleitt sérpöntunYfirleitt sérpöntunYfirleitt sérpöntun

Heimild: gagnablöð Heskins fyrir H6905 PermaLean, H6903 PermaRoute, H6901 PermaStripe og H6906 PermaStripe Smooth, öll dagsett 26.04.2024. Prófanir á límingu og togi voru gerðar af Adhesive Technical Services Ltd og núnings- og pendúlprófin á óháðri rannsóknarstofu. Heskins tekur fram að öll gildin séu til viðmiðunar. Viðloðun PermaRoute er mæld með annarri aðferð en hinna þriggja (PSTC-1 í kg/25,4 mm á móti FINAT FTM1 í N/25 mm) og tölurnar eru því ekki samanburðarhæfar. Gagnablað H6906 PermaStripe Smooth hefur hvorki hálkuflokkun né pendúlpróf.

0,62 mm

PermaLean H6905

Þynnsta línan og sú hagkvæmasta. Heilir litir eru einsleit lituð PVC-filma, 0,5 mm þykk í gegn, svo rispa afhjúpar ekki annan lit undir. Lægra snið þýðir líka minna sem hjól og brettahorn geta tekið í.

PermaLean er fyrir almennt vöruhús, lager og framleiðslusal þar sem gangandi umferð og regluleg afmörkun eru meginverkefnið. Lægra snið getur verið kostur, en meta þarf hjólaumferð og beygjur á gólfinu sérstaklega. Skilyrt ábyrgð framleiðanda er eitt ár.

Á móti er hann framleiddur í 1260 mm móðurrúllum og skorinn niður eftir pöntun, svo breiddarúrvalið er það mesta í línunni: allt frá 15 mm reitalínu upp í 1260 mm breiða merkingu. Sérbreiddir og litir eru staðfest við pöntun; vöruskráning ein og sér er ekki staðfesting á lagerstöðu.

Hættumynstrin eru ekki heilir litir heldur prentuð á 250 µm grunnfilmu með 250 µm glærri slitfilmu yfir, svo mynstrið liggur inni í efninu og rispast ekki af.

Svört PermaLean rúlla, H6905N, með endann flettan fram

0,96 mm

PermaRoute H6903

Lagskipt gólfmerkingakerfi þar sem glær slitfilma ver litinn og prentunina undir. Hentar þegar tengja þarf línur, horn, mót og sérmerkt svæði í samræmt skipulag.

Uppbyggingin er önnur en á hinum þremur. PermaRoute er 0,15 mm grunnfilma með lituðu yfirborði og 0,55 mm glærri slitfilmu lagskipt ofan á. Umferðin gengur því á glæru slitlagi en ekki á litnum sjálfum, og þess vegna er hægt að prenta mynstur, texta og tákn undir verndandi slitlaginu.

Það er líka ástæðan fyrir því að PermaRoute er sveigjanlegastur í sérsmíði. Heskins framleiðir rúllur í allt að 1260 mm breidd, matchar RAL-, Pantone- og NCS-liti eftir pöntun og prentar heiti svæða beint í filmuna.

Vörusafnið inniheldur líka tilbúin PermaRoute-gólfmerki, svo sem skófar, gangandi vegfaranda og lyftara. Staðfestu sérstaklega lagerstöðu og lit; stærstur hluti Heskins-úrvalsins er sérpöntun.

PermaRoute er eina línan sem ber brunaprófun á gagnablaðinu: hún stenst EN 13501 og DIN 11925 samkvæmt vottorði Exova 2012-1552-1.

Gular PermaRoute línur og örvar á steyptu gólfi marka einstefnu þar sem starfsmaður gengur eftir leiðinni

1,3 mm

PermaStripe H6901

Þykkur borði úr gegnheilli 1 mm PVC-filmu með mynstruðu yfirborði og skáskornum brúnum. Valkostur fyrir krefjandi merkingar í iðnaði og vöruhúsum; skilyrt ábyrgð framleiðanda er þrjú ár, eins og á Smooth.

Skáskornu brúnirnar eru þýðingarmeiri en þær hljóma. Þykkur borði með beinni brún er kantur sem hjól og brettahorn taka í; skáskorin brún lætur hjólið renna aflíðandi upp á borðann. Rétt lagning og val eftir aðstæðum eru samt nauðsynleg; skáskornar brúnir verja ekki gegn öllu álagi.

Efnið er gegnheilt og sterkt: togstyrkur yfir 200 N/25 mm þýðir að borðinn slitnar ekki í sundur þegar hann er tekinn upp, heldur kemur hann í heilu lagi. Þegar svæðaskiptingin breytist er það munurinn á hálftíma og heilum degi.

Yfirborðið er mynstrað. Mynstrið gefur fótfestu og felur rispur, en það hefur líka rifur sem óhreinindi setjast í. Þar sem það skiptir máli er PermaStripe Smooth hér fyrir neðan sama efni með sléttum fleti.

Rúllurnar eru 30 metra langar og boðið er upp á 50, 75 og 100 mm breiddir. Skoðaðu liti og form á undirsíðunni og staðfestu útfærslu, verð og lagerstöðu áður en pantað er.

Græn PermaStripe lína á steyptu vöruhúsgólfi milli vörubretta og lyftara

1,3 mm

PermaStripe Smooth H6906

Sama gegnheila 1 mm PVC-filman, sama lím og sama þykkt og PermaStripe. Eini munurinn er yfirborðið: hér er ekkert mynstur. Heskins þróaði línuna eftir eftirspurn frá þeim sem þurftu merkingu sem hægt er að þrífa almennilega.

Svört PermaStripe rúlla, H6901N, þar sem mynstraða yfirborðið sést
PermaStripe: mynstrað yfirborð.

Mynstraður PermaStripe hefur upphleypta áferð. Samanburður Heskins sýnir muninn á þrifum hans og Smooth; slétt yfirborð er auðveldara að þrífa á milli notkunar.

Blá PermaStripe Smooth rúlla, H6906B, með sléttu og gljáandi yfirborði
PermaStripe Smooth: sléttur flötur.

Smooth kemur til skoðunar þar sem auðveldari þrif skipta máli, meðal annars í framleiðsluumhverfi með skilgreinda þrifaferla. Það er ekki vottun fyrir matvælavinnslu eða hreinrými; staðfesta þarf kröfur hvers verkefnis.

Samanburður Heskins: mynstraður PermaStripe og sléttur PermaStripe Smooth, báðir ataðir óhreinindum og svo eftir þrif
Samanburður Heskins fyrir og eftir þrif. Efri röð er mynstraður PermaStripe, sú neðri PermaStripe Smooth.

Eitt þarf að hafa í huga: gagnablað H6906 gefur hvorki upp hálkuflokkun né pendúlpróf, ólíkt hinum þremur línunum sem allar bera R10. Þar sem hálkuvörn er hluti af kröfunum skaltu hafa samband áður en pantað er svo við getum fengið staðfestingu frá framleiðanda.

Smooth er í sjö heilum litum og tveimur hættumynstrum, í 50, 75 og 100 mm rúllum. Gólfmerkingar og gólfborðar frá Heskins eru í langflestum tilfellum sérpöntun. Afhendingartími er 7–10 virkir dagar frá staðfestri pöntun til framleiðanda.

Hagkvæmari kostur

Þegar léttari borði dugar

Perma-línurnar fjórar eru sérhæfðir gólfmerkingarborðar fyrir iðnaðarumhverfi. Stundum er verkið einfaldlega ekki það: afmörkun á meðan framkvæmd stendur yfir, litamerking á hillum, kössum og búnaði, reitir á skrifstofugólfi eða svæði sem fær léttan gangandi umgang. Þá eigum við tvo borða sem kosta brot af því sem Perma-lína kostar.

Sex rúllur af 3M 764i vinyl límbandi í gulu, rauðu, hvítu, grænu, bláu og svörtu á hvítum fleti
3M 764i: 0,125 mm, sjö litir hjá okkur.

3M 764i er fjölhæft vinyl límband sem 3M kynnir sjálft fyrir verk sem það kallar „non-critical“: litakóðun, búntun og merkingar. Gúmmílímið grípur strax og filman fylgir hornum og óreglulegum flötum, svo bandið er ekki síður hluta- og vélamerking en gólfmerking. 3M tilgreinir gólfnotkunina sjálft fyrir svæði þar sem umferð er lítil.

Níu rúllur af Tapeline gólfborða, þar á meðal svart/gult og rautt/hvítt hættumynstur, á hvítum fleti
Tapeline: 0,15 mm, níu litir, líka hættumynstur.

Tapeline er ódýrasti gólfborðinn frá Heskins og sá eini í þessum verðflokki sem fæst í hættumynstrum, svart/gulu og rautt/hvítu. Litföst PVC-filma sem þolir hefðbundna gangandi umferð. Hann er líka notaður á veggi og hillur þar sem eingöngu þarf að merkja með lit. Á gljúpu yfirborði á sama regla við og um hinar línurnar: grunnur fyrst.

Það sem gefið er eftir sést best á þykktinni. 3M 764i er 0,125 mm og Tapeline 0,15 mm á móti 0,62 mm á þynnstu Perma-línunni — fjór- til fimmfaldur munur á efninu sem umferðin gengur á. Hvorugt gagnablaðið gefur upp hálkuflokkun, og hvorugur framleiðandinn gefur ábyrgð á sínum borða sem gólfmerkingu.

3M 764iTapelinePermaLean H6905
Heildarþykkt0,125 mm0,15 mm0,62 mm
UppbyggingPVC-filma með gúmmílímiPVC-filma, 0,135 mm burðarlagEinsleit lituð PVC-filma, 0,5 mm
Togstyrkur57 N/25 mm50 N/25 mm158 N/25 mm
Viðloðun við stál5,3 N/25 mm4,0 N/25 mm25,2 N/25 mm
Lenging við brot180 %150 %—
Notkunarhitabil+16 til +27 °C−10 til +80 °C−30 til +70 °C
Hálkuviðnám, DIN 51130Ekki gefið uppEkki gefið uppR10
Ábyrgð sem gólfmerking——1 ár
Rúllur hjá okkur50 mm × 33 m, 7 litir50 mm × 30 m, 9 litir25, 50 og 200 mm rúllur

Heimild: gagnablað 3M fyrir General Purpose Vinyl Tape 764, það blað sem fylgir vörunni hjá okkur, og gagnablað Heskins fyrir H0401 Tapeline, dagsett 10.06.2015. PermaLean-dálkurinn er til viðmiðunar og kemur úr gagnablaði H6905. Tölurnar eru umreiknaðar í N/25 mm svo dálkarnir séu læsilegir hlið við hlið: 3M mælir 21 N/100 mm og 228 N/100 mm, Heskins 1,6 N/cm og 20 N/cm. Aðferðirnar eru ekki þær sömu — 3M mælir viðloðun eftir ASTM D-3330, Heskins gefur enga aðferð upp á H0401 og PermaLean er mældur eftir FINAT FTM1 — svo tölurnar sýna stærðargráðu en eru ekki beinn samanburður. 3M tekur sérstaklega fram að gildin séu dæmigerð og eigi ekki að nota sem forskrift.

Eitt skiptir máli í óupphituðu húsnæði: 3M gefur upp +16 til +27 °C sem notkunarhitabil fyrir 764i, ekki bara sem lagningarhita. Það er stofuhiti. Í köldum sal, frystiklefa eða úti í porti er það Perma-lína sem á við, ekki ódýrara bandið.

Litakerfi

Litirnir eru kerfið

Uppbygging og aðstæður hafa áhrif á endinguna en liturinn hjálpar til við að gera merkinguna læsilega. Enginn íslenskur staðall segir til um hvaða litur merkir hvað, svo kerfið er ykkar. Það sem skiptir máli er að það sé skrifað niður og að því sé fylgt í öllu húsinu.

Gulur
Akstursleiðir, gönguleiðir og almenn afmörkun. Langalgengasti liturinn og sá sem sést best á gráu steypugólfi.
Blár, grænn og hvítur
Vinnslusvæði, brettastæði, efni í vinnslu og fullunnin vara. Hér ræður ykkar eigið kerfi, ekki staðall.
Rauður
Gallað efni, vara í bið og svæði sem á að halda auðu, til dæmis fyrir framan rafmagnstöflur og slökkvitæki.
Svart/gult og rautt/hvítt
Hættusvæði og staðir þar sem fólk má ekki standa. Hættumynstrin eru lagskipt svo mynstrið rispist ekki af.

Sama gildir um breiddirnar. Ein breidd fyrir gönguleiðir og önnur fyrir reiti gerir merkinguna læsilega áður en nokkur les litinn. Skrifaðu niður vörunúmerið, RAL-gildið og breiddina á hverri línu í kerfinu og þá er viðhaldið einfalt: sami kóði næst þegar kafli er endurnýjaður.

RAL- og Pantone-gildin að baki hverjum lit eru í litaspjöldunum: ellefu litir í PermaLean og fimmtán í PermaStripe, níu í Smooth og núverandi PermaRoute-litaspjald. Línurnar deila ekki einu litakorti — berðu saman vörunúmer og litaviðmið áður en pantað er.

Svona er merkt

Verkið er eins á öllum fjórum línunum og þarf engin sérverkfæri. Það sem ræður endingunni er undirbúningurinn og hitinn, ekki handbragðið.

  1. Hreinsaðu gólfið. Yfirborðið þarf að vera hreint, þurrt og laust við fitu, olíu og ryk. Heskins notar ísóprópanól-hreinsi í sínum leiðbeiningum. Á gljúpu eða mjög sogandi gólfi er grunnur lagður fyrst.
  2. Mældu og skerðu. Rúllaðu borðanum út í áætlaða lengd og skerðu hann til með hníf eða skærum.
  3. Flettu bakfilmunni af frá öðrum endanum í stað þess að taka hana alla af í einu. Þannig heldurðu línunni beinni.
  4. Leggðu borðann niður og réttu hann af áður en þú þrýstir honum fast. Límið grípur strax, svo það borgar sig að stilla af fyrst.
  5. Rúllaðu yfir alla lengdina. Þrýstivirkt akrýllím byggir viðloðunina upp við þrýstinginn. Hún heldur svo áfram að styrkjast fyrsta sólarhringinn.
  6. Lokaðu brúnunum með kantlímingu þar sem umferð vinnuvéla er mest eða þar sem borðinn endar úti á miðju gólfi. Það er brúnin sem lyftist fyrst, ekki miðjan.

Lagningarhitinn er sá þáttur sem oftast klikkar hér á landi. Heskins gefur upp 10 °C lágmark og það á við um gólfið sjálft, ekki bara loftið í salnum. Óupphitað vöruhús að vetri er undir mörkunum þótt hitamælirinn á veggnum sýni annað.

Fylgihlutir

Grunnur, rúlla og kantlíming

Þrennt lengir líftíma merkingar meira en nokkuð annað: grunnur á gljúpu gólfi svo límið nái festu, þrýstirúllan sem pressar borðann niður alla leiðina, og kantlíming á þeim brúnum sem umferðin tekur í.

Form og sérpöntun

Þú ert ekki bundinn við beinar línur

Heskins stansar sama efnið og rúllurnar eru úr í tilbúin form, svo heil gólfmerking verði úr einu efni, í sama lit og með sama sliti og línan sjálf.

Horn og samskeyti

L-, T- og X-mót, 45° og 90° horn, brýr og endastykki, stönsuð til að passa við 50, 75 og 100 mm rúllur. Beygja úr stönsuðu horni er beinni en nokkur nær að skera á staðnum.

Tákn og stafir

Fótspor, skófar, örvar, hringir, gangandi vegfarandi og lyftari, auk tölustafa og bókstafa í tveimur til þremur hæðum fyrir heiti svæða og reitanúmer.

Breiddir og prentun

Rúllur frá 15 mm upp í 1260 mm, litir eftir RAL, Pantone eða NCS og texti prentaður í filmuna. Sérsmíði kallar á lágmarksmagn og stundum verkfærakostnað.

Nokkrir PermaStripe-litir fást eingöngu sem 50 mm rúllur og ekki sem stönsuð form: sérstakur gulur, sérstakur grænn, dökkblár, sérstakur blár og svart/hvítt hættumynstur. Heil yfirferð yfir formin, með málum, er á PermaLean-síðunni og PermaStripe-síðunni — formin eru ekki alveg þau sömu, því fjögur tákn eru ekki stönsuð í þykkara efninu.

Skoðaðu líka PermaRoute-formin og Smooth-formin. Úrval forma, stærða og lita er mismunandi eftir línu. Gólfmerkingar og gólfborðar frá Heskins eru í langflestum tilfellum sérpöntun. Afhendingartími er 7–10 virkir dagar frá staðfestri pöntun til framleiðanda.

Sérpantanir frá Heskins

Pantanir og afhending

Gólfmerkingar og gólfborðar frá Heskins eru í langflestum tilfellum sérpöntun. Afhendingartími er 7–10 virkir dagar frá staðfestri pöntun til framleiðanda.

Sendu okkur vörulínu, lit eða vörunúmer, breidd og lengd rúllu eða form og mál, ásamt magni. Fyrir prentun fylgi texti eða teikning. Við förum yfir útfærslu og verð áður en pöntun er staðfest til framleiðanda.

Afhendingartíminn byrjar ekki við fyrirspurn. Staðfestu lagerstöðu sérstaklega ef þú þarft ákveðna vöru fyrr; ekki er hægt að lesa hana út úr úrvali vörulínunnar.

Vörurnar

Gólfborðar í vörusafninu

Skráðir gólfborðar, ódýrust fyrst, ásamt ódýrari kostum frá 3M og Tapeline. Tilbúnu gólfmerkin eru í PermaRoute-röðinni hér ofar. Ekki er allt Heskins-úrvalið sérskráð í versluninni. Vöruskráning er ekki loforð um lagerstöðu; sendu fyrirspurn um rétta útfærslu.

Algengar spurningar

Hvaða lína á við hjá mér?

PermaLean er hagkvæm grunnlína fyrir almennar merkingar. PermaStripe er þykkur borði með mynstruðu yfirborði og skáskornum brúnum. Smooth er slétti kosturinn þegar auðveldari þrif skipta máli. PermaRoute notar glæra slitfilmu yfir lit og prentun og hentar samræmdu merkingakerfi með línum, táknum og sérútfærslum.

Veldu ekki eingöngu eftir þykkt: undirlag, umferð, beygjur, þrif og hálkukröfur skipta líka máli. Allar fjórar línurnar bjóða form, en úrvalið er mismunandi. Lýstu aðstæðunum fyrir okkur í síma 415 4000.

Eru Heskins-gólfmerkingar lagervara og hver er afhendingartíminn?

Gólfmerkingar og gólfborðar frá Heskins eru í langflestum tilfellum sérpöntun. Afhendingartími er 7–10 virkir dagar frá staðfestri pöntun til framleiðanda.

Staðfestu lagerstöðu þeirrar útfærslu sem þú þarft sérstaklega. Sendu vörulínu, lit, breidd eða form, mál og magn; við staðfestum útfærslu og verð áður en pöntun fer til framleiðanda.

Duga ódýrari borðarnir ekki alveg eins?

Fyrir sum verk, já. 3M 764i og Tapeline kosta brot af Perma-línunum og eru rétta svarið þegar merkingin á að vera tímabundin, umferðin er gangandi, eða verið er að litamerkja hillur, kassa og búnað frekar en akstursleiðir.

Munurinn er efnisþykktin: 0,125 og 0,15 mm á móti 0,62 til 1,3 mm. Undir lyftara eða brettatjakki, og hvar sem hjól beygir á sama blettinum dag eftir dag, slitnar þunn filma í gegn og brúnirnar byrja að lyftast. Hvorugt gagnablaðið gefur upp hálkuflokkun og hvorugur framleiðandinn gefur ábyrgð á sínum borða sem gólfmerkingu.

3M gefur auk þess upp +16 til +27 °C sem notkunarhitabil fyrir 764i. Óupphitað vöruhús að vetri er utan þeirra marka.

Hvað endist gólfmerking?

Heskins gefur skilyrta ábyrgð: eitt ár á PermaLean, tvö á PermaRoute og þrjú á PermaStripe og PermaStripe Smooth. Ábyrgðin er háð skilmálum og er ekki loforð um tiltekinn líftíma.

Í reynd ræðst endingin af þrennu: undirbúningi gólfsins, lagningarhitanum og því hvort brúnirnar eru lokaðar þar sem umferðin er hörðust. Merking sem er lögð á kalt eða rykugt gólf gefur sig löngu áður en ábyrgðin rennur út.

Ábyrgðin nær ekki til þess sem er dregið, ýtt eða skrapað yfir borðann, svo sem bretta og grinda.

Við hvaða hita má leggja borðann?

Heskins gefur upp 10 °C eða hærra fyrir allar fjórar línurnar, og það á við um gólfið sjálft en ekki bara loftið í salnum. Óupphitað vöruhús að vetri er undir mörkunum þótt hitamælirinn á veggnum sýni annað.

Þegar borðinn er kominn niður er uppgefið notkunarhitabil hans −30 til +70 °C.

Þarf að grunna gólfið?

Á steyptu, máluðu og epoxýhúðuðu gólfi dugar yfirleitt góð hreinsun. Á gljúpu, sandblásnu eða mjög sogandi yfirborði nær límið ekki fullri viðloðun og þá er grunnur lagður fyrst.

Við eigum bæði grunninn og kantlíminguna frá Heskins; hvort tveggja er í fylgihlutum fyrir gólfborða.

Er hægt að fá annað en beinar línur?

Já. Heskins stansar sama efnið í horn, T- og X-mót, brýr, endastykki, hringi, fótspor, örvar, tölustafi og bókstafi, svo heil merking verði úr einu efni í sama lit.

Gólfmerkingar og gólfborðar frá Heskins eru í langflestum tilfellum sérpöntun. Afhendingartími er 7–10 virkir dagar frá staðfestri pöntun til framleiðanda.

Athugaðu að nokkrir PermaStripe-litir fást eingöngu sem 50 mm rúllur og ekki sem stönsuð form: sérstakur gulur, sérstakur grænn, dökkblár, sérstakur blár og svart/hvítt hættumynstur.

Má prenta á borðann?

Já, á PermaRoute og á PermaStripe-línurnar báðar. Þá er texti eða tákn prentað í filmuna, til dæmis heiti svæðis, reitanúmer eða fyrirmæli á borð við „Aðeins fyrir starfsfólk“.

Sléttur flötur PermaStripe Smooth tekur best við fínni prentun. Prentun kallar á lágmarksmagn og stundum verkfærakostnað, svo sendu okkur texta, lit, breidd og fjölda og við verðleggjum verkið.

Hvernig er skemmdur kafli lagfærður?

Skerðu skemmda kaflann burt með hníf eftir reglustiku, hreinsaðu undirlagið og leggðu nýjan bút í sömu breidd. Á heilum litum sést samskeytið varla, því liturinn er sami í gegn.

Þetta er kosturinn við límborða fram yfir málningu: viðgerðin tekur mínútur og svæðið er nothæft strax á eftir.

Má nota þessa borða utandyra?

Heskins kynnir allar fjórar línurnar sem gólfborða fyrir innanhússgólf í iðnaði og gefur ekki upp utanhússnotkun. Uppgefið hitabil á við notkunarhita vörunnar og segir ekkert um veðrun, UV-álag eða hálku í bleytu utandyra.

Ef verkefnið er utandyra skaltu hafa samband áður en pantað er og við förum yfir hvað á við.

Ætlarðu að merkja gólf?

Segðu okkur hvað á að merkja, hvers konar gólf það er og hversu hörð umferðin er. Við förum yfir hvaða lína á við, hvaða breidd og hvaða litakerfi, og hvað þarf af grunni og kantlímingu með. Síminn er 415 4000.