Genius Boost Max 12V og 24V – GB500, 20.000 A / 80.000 J starttæki. GB500 er í senn meðfærilegt og gríðarlega öflugt starttæki sem ætlað er til notkunar bæði fyrir 12V sem og 24V. Auðvelt er að skipta milli 12V og 24V. Innbyggður spennumælir sem sýnir stöðuna á rafgeymunum.
Vegna “Ultra-safe” einkaleyfa varinnar tækni er GB500 starttækið mjög öruggt til notkunar fyrir hvern sem er, það veitir neistafría tengingu sem og vörn gegn öfugri pólun.
Genius Boost Max GB500 má einnig nota sem hleðslustöð/hleðslubanka fyrir allskonar USB tengd tæki upp að 2.1A s.s. snjallsíma, spjaldtölvur, heyrnartól o.fl. eða til þess að knýja 12V tæki s.s. dekkjapumpu og Power inverter o.fl.. GB500 starttækið má einnig nota sem ljósgjafa, það inniheldur LED ljós sem er 2.200 lúmen með mismunandi stillingum s.s. SOS stillingu í neyðartilfellum.
Við endurhleðlsu á Genius Boost Max GB500 starttækinu
- Miðað við hleðslu í 240V AC (56W): 6-8 klukkustundir (Hægt að nota venjulegar 230/240V innstungur)
- Miðað við hleðslu í 12V DC (60W): 6-8 klukkustundir
Hvað er í kassanum:
- GB500 starttæki
- Boost Max kaplar með klóm
- 56W XGC hleðlsutæki
- 12V tengi hún (ÚT)
- 12V tengi hann (INN)
- Taska undir tækið
- Leiðbeiningar
Stærð tækis:
- Hæð: 162 mm
- Breidd: 311 mm
- Dýpt: 207 mm
- Þyngd: 8,73 kg
Genius Boost Max GB500 20.000A hentar fyrir bíla, trukka, báta. Fyrir bensínvélar og díselvélar allt að “Class 8+” og “Class CE” öruggt til notkunar á allar vélastærðir, trukka, vinnuvéla, vinnutækja og ökutækja.
Ítarlegri tæknilegar upplýsingar má sjá í fylgiskjölum