MaxShine Cordless Electric Sprayer & Foamer – Rafhlöðudrifinn 2ja lítra úðakútur / kvoðukútur sem hentar sérstaklega fyrir þá sem vilja létta sér lífið við að þrífa bílinn ásamt öðrum verkefnum. Vandaður úða- og kvoðukútur sem veitir góða kvoðu (hægt að stilla þéttleika kvoðunnar með svamp-púðum sem fylgja með).
Úðakúturinn er með stillanlegri froðu- og úðavirkni sem gerir þér kleift að skipta hratt milli þéttrar hreinsifroðu og venjulegrar úðadreifingar. Þráðlaus úðakútur með kvoðukerfi, tilvalinn fyrir alla sem vilja flýta fyrir í þrifum á bílnum, húsbílnum, mótorhjólinu eða bara heima við.
Með innbyggðri rafhlöðu og léttbyggðri hönnun getur þú auðveldlega unnið án truflana. Úðakúturinn er hlaðinn með USB-C snúru og inniheldur 2600mAh rafhlöðu sem endist í allt að 60 mínútur. Hentar fyrir fagmenn sem og til heimilisnotkunar.