Valvoline Axle Oil 75W-90 LS er gírolía fyrir mismunadrif með tregðulæsingu (Limited Slip) í fólksbílum og sendibílum. Hún hentar þar sem framleiðandi mælir með SAE 75W-90 og API GL-5 LS, meðal annars í mörgum fjórhjóladrifnum og aflmiklum ökutækjum.
Helstu eiginleikar
- SAE 75W-90
- API GL-5 LS
- Sérstök núningsstýring fyrir Limited Slip mismunadrif
- Góð slit-, tæringar- og hitavörn
- Stöðug smurfilma undir miklu álagi
Fylgið ávallt forskrift framleiðanda ökutækisins.






