Wipe Out grill- og ofnhreinsirinn er mjög öflugur og hraðvirkur. Virkar einstaklega vel á uppsafnaðri fitu sem og innbrennd óhreinindum. Wipe Out er sérlega góður á útigrillið og grindurnar. Ólíkt mörgum ofnhreinsum er ekki er þörf á því að hafa ofninn heitan á meðan hann er þrifinn en þó má það en alls ekki heitari en 93°C.
Leiðbeiningar
- Hristið brúsann mjög vel fyrir notkun.
- Ef ofninn er heitur, leyfið ofninum að kólna og hafið hann ekki heitari en 93°C við þrifin.
- Úðið Wipe Out yfir óhrein svæði úr c.a. 25-30 cm fjarlægð.
- Látið efnið standa í 15 – 45 mínútur svo það nái að leysa upp óhreinindin.
- Strjúkið af með svampi eða klút, hreinsið eftir það með rökum klút eins og þörf er á þar til flöturinn er orðinn hreinn.
- Ef að enn eru til staðar föst óhreinindi, endurtakið lið 3 til 5.
Upplýsingar
- Úðabrúsi
- Inniheldur: 510 ml / 510 grömm
- Tegund efnis: Basískt/Alkalískt
- Kemur út sem kvoða
- pH gildi: 13-14
- Notið ávallt viðeigandi hlífðarfatnað
Ítarlegri upplýsingar i fylgiskjölum