Anti-Kim V2 er fjölnota sótthreinsiefni (inniheldur ekki klór) sem meðal annars má nota til sótthreinsunar í húsnæðum, bílum, teppum, áklæðum, vélum, verkfærum, geymslum ásamt því er Anti-Kim V2 frábært til að eyða ólykt t.d. úr sorpílátum s.s. ruslatunnum, ruslageymslum, ruslarennum og fleiru. Anti-Kim V2 má nota til sótthreinsunar á yfirborðsflötum sem komast í snertingu við matvæli. Virkar einnig sem afrafmagnandi (eyðir stöðurafmagni) úr textílefnum.
Anti-Kim V2 er mikið notað til að eyða myglu úr ýmsum aðstæðum s.s. stein, timbri o.fl.. ATH!: í þeim tilfellum sem verið er að hreinsa myglu á að nota Anti-Kim V2 óblandað.
Anti-Kim V2 hefur einnig verið mjög vinsælt til eyðingar á mosa á hellum, stéttum og veggjum. Efninu er úðað yfir mosann og látið standa í 20 mínútur, burstað yfir með stífum bursta og skolað í burtu. Í sumum tilfellum er hægt að nota háþrýstidælu en í sumum tilfellum skolast sandur sem er á milli hellna í burtu.
Blöndunarhlutföll:
- Sótthreinsun: 2% (2 dl. í 10 lítra af vatni)
- Lyktareyðing: 5% (5 dl. í 10 lítra af vatni)
- Til að eyða stöðurafmagni: 2% (2 dl. í 10 lítra af vatni)
- Myglueyðing: Óblandað