Límbyssa frá Loctite sem ætluð er fyrir 50ml tveggja þátta lím, tvær gerðir stimpla fylgja með, 1:1 og 1:2. Límbyssan er handvirk og hentar flestum 50ml tveggja þátta límtúpum sem koma í svokallaðri D-útgáfu. Passar fyrir 3M tveggja þátta lím
Notkun: Undirbúðu fleti vandlega og fylgdu leiðbeiningum framleiðanda um blöndun, vinnslutíma og herslu. Athugaðu samhæfni við efnin sem á að líma eða búnaðinn sem á að nota.









