Riflás frá fyrirtækinu Velcro sem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á margskonar gerð riflása. VELCRO® HOOK PS30 og LOOP PS30 kemur með góðri límingu á bakhlið, en PS30 stendur fyrir styrkleikann á límingunni.
Hægt er að fá VELCRO® Brand HOOK / LOOP með líminguna PS30 í tveimur breiddum, 25mm og 50mm, hvítan eða svartan.
Hvað þarf ég að kaupa?
- HOOK (grófa, stífa hlutann) og LOOP (mjúki, loðni hlutann) hlutana þarf að kaupa í sitthvoru lagi til þess að fá báða hluta riflássins (þeir koma ekki í pari).
Sterk líming á riflásnum!
- Ef að þú ert að leita að mjög sterkri límingu á bakhliðinni þá bjóðum við einnig upp á riflás frá fyrirtækinu Velcro sem er með mjög sterka límingu og mikið grip í riflásnum sjálfum, sá riflás er með PS52 límingu, sem er það sterkasta sem að við bjóðum.
Hver er munurinn á HOOK og LOOP?
Almennt samanstendur riflás af tveimur pörtum og eru þetta nafngiftirnar á riflásnum sem segja til um það hvorn hlutann af riflásnum er verið að velja.
Leiðbeiningar við álímingu
- Hreinsið vel og þurrkið yfirborð fyrir álímingu.
- Fjarlægið filmuna af límborðanum, ýtið þéttingsfast yfir borðann.
- Límingin á borðanum nær fullum styrk eftir 24 klst.
Athugið: Svona riflást hentar ekki til límingar á tauefni, mælaborð, sveigjanlegan vínil eða notkun neðan sjávar/vatns. Áhrif sólarljóss í langan tíma getur skemmt líminguna.
VELCRO® er skráð vörumerki í eigu Velcro BVBA. Notað með leyfi.