IK e FOAM Pro 12 er 18V rafhlöðudrifinn kvoðukútur. Mjög vandaður og sterkbyggður kvoðumyndandi úðakútur sem myndar góða kvoðu að því gefnu að vökvinn sem verið er að nota í kútinn sé á annað borð kvoðumyndandi. Hentar fyrir margvísleg verkefni s.s. við sótthreinsun og þrif, í byggingariðnaði, bílaiðnaði og margvíslegan annan iðnað, meindýravarnir, sóttvarnir og margt fleira.
Upplýsingar
- Úðakúturinn tekur (magn vökva): 6 lítra (Heildarmagn 10 lítrar)
- Slanga: 1,3m
- Lengd úðabyssu: 47cm
- Úðastútar: 3 gerðir fylgja með (grár kemur á úðabyssunni)


















