WD-40 BIKE Cleaner hjólahreinsir 500 ml
WD-40 BIKE Cleaner er hreinsir fyrir allt hjólið — ekki bara drifrásina. Hann leysir upp drullu, salt, fitu og óhreinindi og er óhætt að nota á ramma, gjarðir, dempara, sæti og alla málma.
Flaskan er 500 ml úðabrúsi með handdælu (trigger), ekki háþrýstibrúsi. Þú stýrir því sjálf/ur hversu mikið kemur og getur úðað yfir stóra fleti án þess að eyða miklu.
Helstu kostir
- Hreinsar allt hjólið — ramma, gjarðir, dempara og drifrás
- Virkar hratt á drullu, salt, fitu og óhreinindi
- Óhætt á allar gerðir málma og flesta fleti á hjólinu
- Handdæla sem þú stýrir sjálf/ur — ekkert drifefni
- Hentar fyrir reiðhjól og rafhjól
Hentar vel á
- Ramma og gaffal
- Gjarðir og dekk
- Dempara og sæti
- Drifrás og bremsubúnað
Leiðbeiningar um notkun
- Skolaðu lausustu drulluna af með vatni.
- Úðaðu hreinsinum jafnt yfir hjólið.
- Láttu vinna í stutta stund.
- Burstaðu með mjúkum bursta þar sem þarf.
- Skolaðu með vatni og þurrkaðu.
- Smyrðu keðjuna aftur eftir þvott — hreinsun tekur líka smurninguna af.
Tæknilegar upplýsingar
| Vörunúmer | 47228 |
|---|---|
| Magn | 500 ml |
| Umbúðir | Úðabrúsi með handdælu (trigger) |
| Vörulína | WD-40 Specialist BIKE |
Tæknigögn eru úr opinberu gagnablaði framleiðandans. Öryggisblað (SDS) fæst hjá okkur sé þess óskað.
Varúð og geymsla
Forðastu að beina bunu beint inn í legur, á milli gjarðar og nafar eða inn í botnfalsið. Notaðu aldrei háþrýstidælu á legur hjólsins.











